áfengislög.
Herra forseti. Ég stóðst ekki mátið að eiga orðastað við hv. þingmann sem var svo heppinn að sitja í allsherjar- og menntamálanefnd á síðasta ári og rifja upp að þá fengum við ekki bara forvera þessa frumvarps, sem þá var flutt af hæstv. ráðherra Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, heldur fengum við eiginlega tvíbura þess sem var fluttur af þingflokki Framsóknarflokksins. Hann var efnislega alveg eins, að undanskildu einu smáatriði sem voru stærðarmörk brugghúsa. Í frumvarpinu sem við ræðum í dag, líkt og í frumvarpinu sem lagt var fram af ráðherra fyrir ári, er miðað við 500.000 lítra mörk á ári. Framsóknarflokkurinn vildi miða við milljón lítra sem, eins og kom fram í ræðu fyrr í kvöld, eru einmitt mörkin sem Félag handverksbrugghúsa miðar við til að brugghús megi vera aðilar. Svo fórum við aðeins að rýna þetta. Hver er munurinn? Við sáum að það skeikaði bara einu félagi. Það var eitt fyrirtæki sem var undanskilið í stjórnarfrumvarpinu sem þingmannafrumvarpið náði utan um, og það kom síðan fram í umsögnum við það mál, og það er brugghúsið Kaldi. Það brugghús framleiðir rúmlega 600.000 lítra á ári og kemst þess vegna ekki undir verndarvæng þess frumvarps sem hér er verið að mæla fyrir. Mig langar að spyrja hv. þingmann, af því að mér fannst þetta alltaf svo skrýtið hérna fyrir ári. Nú ætla ég ekki að fara að leggjast í einhverja auglýsingamennsku fyrir Kalda en það verður samt ekki af því fyrirtæki tekið að það er brautryðjandi í þessum litlu sjálfstæðu brugghúsum, sem ég hélt einmitt að þetta frumvarp ætti að ná (Forseti hringir.) utan um. En það nær utan um þau öll nema það eina sem var fyrst á svæðið. Var eitthvað rætt um þetta af viti í nefndinni?