áfengislög.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir þetta andsvar og fyrir að rifja þetta upp með mér. Ég var satt best að segja búin að gleyma þessu, kannski vegna þess að ég var svo mikið með hugann við þá staðreynd að fram kom frumvarp frá þáverandi dómsmálaráðherra sem var töluvert kraftmeira en það sem síðan varð niðurstaðan. En þegar þú rifjar þetta upp með mér þá var það auðvitað þannig að fólk staldraði við það hvers vegna þetta voru 500.000 lítrar en ekki 400 eða 700. Fyrir okkur sem vorum að skoða þetta mál var þetta bara einhver tala sem birtist af himnum ofan.
En án þess að ég ætli að fara að vitna í umræður innan nefndarinnar er alveg rétt hjá hv. þingmanni að það virtist vera niðurstaðan að eitt brugghús félli utan þess ramma sem frumvarpið boðaði. Hvort sem það var ætlunin eða ekki þá leiðir það auðvitað til þess að einhver lagasetning, sem virðist að formi til vera almenn, hefur a.m.k. mjög sértækar afleiðingar; það er öllum boðið nema einum. Í barnaafmælum heitir svoleiðis hegðun eitthvað. (Gripið fram í.) Það vakti athygli, fyrir utan það náttúrlega að það var greinilega einhver mismunandi skilningur á milli stjórnarflokka á því hver væri að leggja fram hvað. Þannig að ég myndi nú strax í þessu samhengi biðla til hæstv. dómsmálaráðherra, að hann myndi huga að þessum mörkum þannig að smærri brugghúsin, eða þau sem eru undir þessari regnhlíf, geti öll tekið þátt. Ég ætla líka að leyfa mér að taka undir þetta mat hv. þingmanns, án þess að vilja hljóma sem kynningarfulltrúi, um brautryðjendastarf Kalda.