152. löggjafarþing — 80. fundur,  24. maí 2022.

áfengislög.

596. mál
[20:55]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Herra forseti. Það er svo gaman að rifja það upp, vegna þess að ég hef aldrei upplifað annað eins kapphlaup hér í þingsal þar sem þingmenn stjórnarflokks rembast beinlínis við að vera á undan ráðherra sinnar eigin ríkisstjórnar með sama frumvarp hingað í salinn eins og gerðist í fyrra. En þessi mörk skipta auðvitað máli og það er eðlismunur á fyrirtækjum þarna einhvers staðar um þetta bil. Við sjáum að núna er Ölgerðin komin á markað, bara orðin að opinberu hlutafélagi. Það er allt öðruvísi rekstur en lítið brugghús sem rekið er í bakherbergi í einhverju iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði. Við værum kannski ekki að spá mikið í þetta nema út af því að akkúrat þessir tveir stjórnarflokkar drógu upp þessa ágreiningslínu fyrir okkur hér fyrir ári. Munurinn á 500.000 lítrum, sem ríkisstjórnin leggur hér til, og milljón lítrum, sem handverksbrugghúsin sjálf miða við, er eitt einasta fyrirtæki. Sértækari gerist löggjöf ekki. Það er bara hægt að benda á hús á Árskógssandi og segja: Sorrý, þið eruð ekki með í þessum lögum. Allir hinir vinir ykkar, allt hitt fólkið sem starfar með ykkur undir regnhlíf smærri brugghúsa er með okkur. Þið eruð úti.

Svo held ég líka að þetta sé ótímabær umræða í ljósi þess að mælt var fyrir stjórnarfrumvarpinu fyrir ári, í febrúar. Nú er maí næstum búinn. Bæði þingið núna og þingið fyrir ári áttu að klárast snemma í júní (Forseti hringir.) þannig að ég held að hér sé meira en bjartsýni að reikna með því að þetta mál verði nokkurn tímann að lögum á þessu þingi. (Forseti hringir.) Það mætti kannski frekar beina því til ráðherra að taka þetta til skoðunar fyrir næstu framlagningu.