152. löggjafarþing — 80. fundur,  24. maí 2022.

áfengislög.

596. mál
[20:57]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég held að það megi alveg segja það að vinningslíkurnar með áfengisfrumvörpum stjórnvalda eru sjaldnast miklar. Ég held að það sé ekkert óskaplega kalt gisk að það fari eins með þetta frumvarp. En mig langaði til að taka upp þennan punkt af því að það var rætt svo mikið um ferðaþjónustuna í samhengi við þetta mál á sínum tíma eftir að búið var að tálga netverslunina, sem var þungamiðja málsins, í burtu og þýðingu brugghúsanna fyrir ferðaþjónustuna, fyrir landsbyggðina og hvað þau hefðu gert mikið, t.d. bara í sambandi við atvinnuþróun og nýsköpun alls konar. Mér finnst algerlega augljóst mál að við verðum við þessu og trúi því ekki að það verði niðurstaðan, ef það blasir við að það sé enn þá með þeim hætti, að eitt brugghús sé undanskilið í löggjöfinni. Slík löggjöf stenst ekki skoðun þannig að þetta hlýtur að taka breytingum.

En af því að ég er skoðanasystir hv. þingmanns um líklega tímalínu í þessum efnum þá myndi ég líka eindregið hvetja hæstv. dómsmálaráðherra til þess, með virðingu fyrir samkeppnisstöðu innlendra aðila gagnvart erlendum, að skoða netverslunina gaumgæfilega. Hún var útfærð í frumvarpi. Hún hvarf eins og hlutir geta gert á netinu. (Gripið fram í.) Ég held að samfélagið allt sé komið á þann stað að kalla eftir þessu og skilja það og það held ég að ríkisstjórnin geti líka gert.