152. löggjafarþing — 80. fundur,  24. maí 2022.

áfengislög.

596. mál
[20:59]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Herra forseti. Við ræðum þetta frumvarp til laga um breytingu á áfengislögum, sem er sala á framleiðslustað. Við höfum rætt þetta hér í kvöld og þetta hefur verið rætt svolítið á síðustu árum. Ég fagna því að þetta sé komið fram hér. Það hefur verið mjög skemmtilegt að fylgjast með þróun á minni brugghúsunum á Íslandi og handverksbrugghúsunum. Og fyrst að kynningarfulltrúar Kalda á Árskógssandi hafa talað hér í kvöld má nefna líka að það hefur verið einstaklega gaman að fylgjast með þeirri þróun frá 2006, hvernig það hefur byggst upp, frá litlu brugghúsi upp í aðeins meiri rekstur.

Svo ég segi það strax þá er ég er sammála málinu, það er búið að koma aðalatriðinu að sem ég ætlaði helst að gera athugasemd við hér, en ég hefði gjarnan viljað að þetta væri 1 milljón lítra en þetta væri miðað við eins og samtök handverksbrugghúsa leggja áherslu á í sinni starfsemi, hvað þau kalla handverksbrugghús, í sambandi við stærðarmörk. Ég tek undir það sjónarmið með hv. þingmanni að það er ekki fallegt að berja á einum í þessu máli. Það er þannig að með tíð og tíma hefur reksturinn þróast þannig að ég held að þetta séu einhverjir 600.000–800.000 lítrar sem hafa verið framleiddir núna á síðustu árum og sannarlega á brugghúsið á Árskógssandi að vera undir þessu frumvarpi sem við erum að ræða hér.

Það er rétt og mér hefur fundist mjög áhugavert að sjá hvað þetta hefur kryddað ferðaþjónustuna víða á landsbyggðinni og sérstaklega, ef ég tek bara mitt kjördæmi, Norðausturkjördæmi. Það er Segull 67 á Siglufirði, svo ég gerist kynningarfulltrúi fyrir kjördæmið, og svo er Bruggsmiðjan á Árskógssandi. Svo er náttúrlega, þótt það falli ekki undir þetta, mikil framleiðsla hjá Víking brugghús á Akureyri. Húsavík öl á Húsavík er líka mjög skemmtilegt og hefur verið skemmtileg ferðaþjónusta í kringum það. Austri á Egilsstöðum er brugghús og Beljandi á Breiðdalsvík. Þannig við getum talið upp mörg smærri … (Gripið fram í.) — Á Borgarfirði eystri líka, já, það er rétt, það var bara ekki áðan … Þetta er agalegt. Þar er líka verið að reyna að gera svolítið skemmtilega hluti úr landa, þannig að það er bara mjög skemmtilegt hvernig þetta hefur verið að þróast í þessu umhverfi.

Eins og kemur fram í greinargerð er sérstaklega verið að tala hér um þessa minni framleiðendur, að hægt verði að leyfa þeim að selja á framleiðslustað. Ég held það sé nú algengast að tala um 30.000–40.000 upp í 60.000 lítra hjá flestum þessum aðilum. Þetta eru smáir aðilar en þeir skapa ótrúlega mörg störf miðað við hversu lítil framleiðslan er. Ef við förum að skoða þetta í heildarsamhengi, neyslu í landinu, þá er þetta ákaflega lítið af heildarmagninu. Ég hugsa, ef miðað er við framleiðslu í landinu — ætli það sé ekki um 20 milljónir lítra sem eru framleiddir af bjór á Íslandi, svona eftir minni, að við séum örugglega að tala um innan við 10% í heildina ef við tökum Kalda framleiðsluna með á landsvísu, kannski 7–8%. Það er mjög mikilvægt að koma því áfram.

Ég ætla ekki að fara í langa tölu um þetta en ég vildi bara koma og lýsa stuðningi við málið. Þetta er svona smáskref í frelsisátt sem snýr að þessu í þessu máli. Svo tökum við seinni mál síðar sem snúa að netverslun og öðru. En ég vildi bara koma og fagna því að þetta væri komið til umræðu í þingsal.