áfengislög.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Þetta er skemmtilegt mál. Ég held að við höfum rætt áfengi hér í þingsalnum á hverjum þingvetri undanfarin ár, mögulega áratugi. Ég verð að segja að þetta er í fyrsta skipti síðan ég kem hingað inn á þing að áfengi er rætt án þess að nokkur þingmaður Vinstri grænna sé á mælendaskrá og bara yfir höfuð inni í salnum. (Gripið fram í.)Hann er búinn að tala en hann er ekki í salnum. Fjölmennustu samkomur þingmanna Vinstri grænna hingað til hafa verið þegar áfengi er rætt hér í salnum, þannig að mér finnst það bara skemmtilegt. En það var nú svo sem ekki spurningin.
Mig langar til að spyrja hv. þingmann og fá að heyra skoðun hans. Við höfum rætt töluvert hér að þetta sé verið að gera m.a. til að krydda ferðaþjónustuna okkar svolítið. Erlendir ferðamenn eru vanir því að geta keypt þessa afurð, hún styrkir ferðaþjónustuna víðs vegar um landið, eins og hv. þingmaður hefur talið hér upp, þeir staðir sem brugga. Mín spurning er eiginlega til okkar, sem erum jú ferðamenn í eigin landi, ekkert djúpt hrifin af bjór. Það er nú íslensk framleiðsla á öðru áfengi. Gin er t.d. áfengi sem er aftur farið að njóta vaxandi vinsælda, m.a. vegna þess að það eru komnar margar skemmtilegar íslenskar gintegundir á markað og hér er framleitt ansi gott gin víða um land. Hvað þætti hv. þingmanni um að þetta mál yrði útvíkkað: Fyrst við ætlum ekki að fara lengra en í íslenska smáframleiðslu, fyrst við erum búin að taka netið út og við ætlum ekki að stíga skrefið lengra, ekki í frelsisátt, hvað með að útvíkka málið þannig að ginið félli undir þetta? Það gæti verið enn skemmtilegra krydd í ferðaþjónustuna okkar.