152. löggjafarþing — 80. fundur,  24. maí 2022.

áfengislög.

596. mál
[21:06]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég ætla ekki að tala um eigin neyslu, ég er ekki mikill bjórdrykkjumaður, bara svo það komi fram. En ég tek hins vegar eftir því þegar maður fer um þessar verslanir sem selja áfengi að það virðist vera miklu einfaldara — mögulega er það sölumál, ég þekki bara ekki það vel til. Ginið er til í Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins eða Vínbúðinni. Því er stillt fram með miklu meira áberandi hætti t.d. í fríhöfninni á Keflavíkurflugvelli, þannig að þessi fyrirtæki virðast hafa miklu betra aðgengi. Ég sé að það er fjölbreytt úrval af íslensku gini víða. Hins vegar sér maður mjög sjaldan í Vínbúðinni, þannig lagað, vörur frá þessum litlu brugghúsum sem eru kannski miklu minni framleiðslueiningar en framleiðsla á gini. Miðað við það sem ég hef séð og lesið, þótt ég muni kannski ekkert af því sem ég hef lesið, þá eru þetta bara stærri framleiðslulotur og meiri framleiðsla. Ég held að þetta séu raunverulega fyrirtæki sem velta miklu meira en litlu brugghúsin. En ég get ekki tjáð mig sérstaklega mikið um ginframleiðslu í landinu vegna þess að ég þekki hana ekki nægilega vel. En það er klárt að þessi litla framleiðsla á bjór í handverksbrugghúsum skapar töluvert mikið af störfum miðað við magnið, vegna þess að það er ákveðin stemning í kringum þetta sem er verið að byggja upp. Víða er þetta bara jákvætt og krydd í ferðaþjónustuna á minni stöðum.