áfengislög.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni. Það er alveg rétt að það er heilmikil stemning í kringum bjórdrykkju, bjórsmakk á brugghúsum og svona. En ég get upplýst hv. þingmann um það af eigin reynslu að það er heilmikil stemning í kringum ginprufur líka, að smakka ólíkar gintegundir. Þetta er eiginlega ekki sett fram bara í gamni. Ég veit að víða erlendis eru heilmikil viðskipti komin í kringum þetta og skemmtileg stemmning þannig að ég myndi vissulega vilja sjá þetta verða að veruleika, að íslenskum framleiðendum væri gert kleift að vera með slík viðskipti og kynningar og viðbrögð í kringum það.
Ég missti af tækifærinu til að eiga þetta samtal við flokksfélaga hv. þingmanns, þ.e. hæstv. dómsmálaráðherra, sem mælti fyrir málinu, en hv. þingmaður tilheyrir flokki sem hefur í orði reynt að koma í gegn breytingum í frelsisátt á sölu áfengis svo lengi sem elstu menn muna, svei mér þá. Þetta er örskref í þá átt. Og það er svo sem ekki enn þá útséð með hvort það næst í gegn, sérstaklega ekki miðað við reynslu síðasta árs þar sem meiri hlutinn var samsettur úr sömu flokkum og nú og kláraði málið ekki. En ég vona að þetta fari í gegn núna. Ég ætla bara að leyfa mér að trúa því líka að þetta verði ekki nein sneypuför með málið. En það sem mig langar til þess að biðja hv. þingmann um, ef hann treystir sér til, svona án ábyrgðar, að velta því upp með mér: Nú er þetta fyrsta ár nýs kjörtímabils þessarar ríkisstjórnar: Telur hv. þingmaður líkur á að fleiri skref verði stigin eða er þetta frelsistáknmerki Sjálfstæðisflokksins í áfengismálum?