áfengislög.
Herra forseti. Ég verð að byrja að minna á Borgarfjörð eystri í framleiðslu á landa svo það gleymist ekki og það verði ekki allt vitlaust í kjördæminu. (Gripið fram í.) Við skulum halda því til haga. Þá erum við komin nær sterkara áfenginu ef við tökum ginið. (HKF: … erum á hættulegri braut hérna. ) — Já. Hins vegar er náttúrlega ómögulegt að spá fyrir um hvernig þetta fer allt saman ef litið er á það í stærra samhengi. Við munum halda áfram, ég og flokkssystkini mín, á þeirri leið að sjá hvað kemst áfram hér í þingsal. Ég held að a.m.k. stór hluti þingflokksins sé þar. Svo er bara að sjá hvernig þetta þróast í þinginu. Það er ekkert meira um það að segja í sjálfu sér og ekki ætla ég að lofa neinu. En auðvitað væri mjög ánægjulegt ef við gætum tekið einhver skref í þessa átt. Mér finnst mikilvægt að það séu mjög öflugar forvarnir í landinu varðandi áfengisneyslu og ég hef alltaf verið mjög hlynntur því og ánægður með hversu framarlega við erum með forvarnir og hvernig við tökumst á við áfengismálin. En það er bara þannig að við höfum raunverulega ekki tekið nein skref frá 1. mars 1989 varðandi bjórinn. Þetta eru að verða 33 ár. Ætli ég hafi ekki verið 19 ára, orðið tvítugur skömmu síðar. (Gripið fram í: … byrjaður að drekka.) Og náttúrlega ekki byrjaður að drekka þá. Þannig að þetta skiptir svolítið (Gripið fram í: …bjórlíki. ) — Þetta mjakast greinilega vegna þess að það eru 33 ár liðin. Það er þriðjungur úr öld. (Gripið fram í.) Þetta væri því ekki stórt skref í þessa átt. Mér finnst neysla áfengis hafa þroskast vel hjá okkur miðað við hvernig varnaðarorðin voru á sínum tíma. (Gripið fram í.)