152. löggjafarþing — 80. fundur,  24. maí 2022.

áfengisböl.

596. mál
[21:20]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S):

Herra forseti. Við heyrum oft, og réttilega, að áfengi sé ekki venjuleg neysluvara. En áfengi er þó lögleg neysluvara. Ég held að það væri gott að við reyndum að horfa á hvað er raunverulega það allra mikilvægasta sem við getum gert til þess að passa upp á börn og aðra sem eiga erfitt með að umgangast þessa vöru, sem er vissulega vandmeðfarin, hvernig við getum sem best stemmt stigu við ofneyslu á henni og komið í veg fyrir vandræði vegna hennar án þess að ganga óþarflega langt og missa mögulega sjónar á því sem mestu máli skiptir. Ég leyfi mér að nefna það að í níunni svokölluðu var ég ein af þeim sem starfaði í jafningjafræðslunni sem þá var til, ásamt reyndar fleiri hv. þingmönnum á þessu þingi. Það var svolítið merkilegur tími þar sem neysla ungmenna á áfengi, og ég tala nú ekki um á eiturlyfjum, hafði verið talsvert mikil. En við ungmennin tókum okkur saman og ræddum neysluna á heiðarlegan, auðmjúkan, sannan og einlægan hátt til að reyna að spyrna fótum við því. Á sama tíma var sjálfræðisaldurinn vissulega hækkaður, foreldrar urðu meðvitaðir og fóru í kvöldgöngur, sem ég man ekki alveg hvað heita í augnablikinu, þannig að það kom auðvitað margt til en neyslan snarminnkaði með árunum. Ástæðan fyrir því að ég nefni þetta er að á sama tíma fjölgaði bæði sölustöðum Vínbúðarinnar, börum fjölgaði, áfengisleyfum fjölgaði, neysla jókst í rauninni en varð betri og síður meðal barna.

Mig langaði að ræða þetta hér því að áfengislöggjöfin okkar almennt er gölluð, held ég að mér sé óhætt að segja. Það eru ákveðnar þversagnir í henni. Þar eru atriði sem eru bönnuð þrátt fyrir að við sjáum þau allt í kringum okkur. Við leggjum ofuráherslu á eitt meðan annað fær að leika lausum hala o.s.frv. Í því samhengi er ég sjálf að leggja fram frumvarp sem er núna hjá allsherjar- og menntamálanefnd um að gæta jafnræðis í netsölu á áfengi þar sem innlendir aðilar myndu þá geta setið við sama borð og aðrir. En ég læt það kannski liggja á milli hluta í þessu máli.

Mig langar fyrst og fremst að reifa málið í innganginum því að ég held að það sé margt sem megi laga og fókusera á í áfengislöggjöfinni okkar almennt. En ég verð að segja að þrátt fyrir að þetta mál sé vissulega um áfengi er það í rauninni svo ofboðslega lítið, aðeins brotabrot af því sem varðar áfengisneyslu eða áfengissölu á Íslandi, að fyrir mér er þetta fyrst og fremst ferðaþjónustumál. Þetta er ofboðslega mikilvægt mál fyrir þessa litlu aðila sem hafa með dugnaði, elju, nýsköpun og mikilli hugmyndaauðgi komið á fót þessum litlu handverksbrugghúsum úti um allt land við miklar vinsældir ferðamanna og annarra. Þetta eru staðir sem ferðamenn koma oft á í skipulögðum ferðum, koma beint til þeirra og fá að smakka framleiðsluna og kynna sér hana og þá er að mínu viti ofboðslega eðlilegt framhald af því að viðkomandi aðilar geti tekið eitthvað af þessari vöru heim með sér, úr því að þeir eru komnir á staðinn á annað borð.

Það er auðvitað sagt í frumvarpinu og þess vegna leyfi ég mér að segja það að fyrir mér er þetta mál ekki eitthvert risaskref í átt að breyttri áfengislöggjöf á Íslandi, þvert á móti. Það er tíundað í gegnum allt frumvarpið að öll stór meginatriði og allir þeir varnaglar sem við höfum á þessari áfengislöggjöf séu óbreyttir.

Ég held að þetta sé ofboðslega jákvætt mál. Ég held að þrátt fyrir að í stóra samhengi hlutanna muni ekkert breytast gífurlega mikið á Íslandi varðandi áfengislöggjöfina almennt þá muni þetta skipta miklu máli fyrir þessa aðila og fyrir upplifun ferðamanna. Ég held að þetta muni skipta miklu máli fyrir eftirspurn eftir framleiðslu á þessari vöru og að þannig muni hróður hennar fara víðar.

Mig langaði að nefna það sem ég heyrði í umræðunni núna hjá þeim hv. þingmönnum sem tóku til máls á undan mér. Þar var verið að velta fyrir sér þessu 500.000 lítra marki. Nú kom ég ekki að því að semja þetta frumvarp en á ekki von á öðru en að hæstv. dómsmálaráðherra muni útskýra betur hvaðan þessi mörk koma. En mig langar að fá að taka undir með hv. þm. Gísla Rafni Ólafssyni sem hvatti nefndina til að skoða þetta atriði sérstaklega. Það er kannski óábyrgt af mér að vera giska á eitthvað í pontu þannig að ég ætla að umorða þetta: Ég myndi halda að í því samhengi verði að hafa í huga umhverfi EES-samningsins sem við búum við þar sem við verðum auðvitað að stíga varlega til jarðar og gæta þess að við séum ekki að stuðla að neins konar mismunun hjá innlendum aðilum eða öðrum sem við erum með í þessu samningssambandi. Ég get ímyndað mér að mögulega hafi verið horft til Finnlands þar sem ákveðinni stærð brugghúsa var veitt þessi heimild þrátt fyrir að vera undir sömu löggjöf. Ég get ímyndað mér að það geti verið einhvers konar viðmið, sem ég býst við að nefndin skoði. Auðvitað verður alltaf að passa hinn ágæta EES-samning sem er að mínu viti einn merkilegasti samningur sem Ísland hefur nokkurn tímann gert. Hann hefur verið mjög jákvæður fyrir land og þjóð. Í frumvarpinu stendur, með leyfi forseta:

„Ljóst er að þær breytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu fela í sér undanþágu frá einkaleyfi Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins á smásölu áfengis. Þessi undanþága mun fela í sér takmarkaða heimild fyrir tiltekna áfengisframleiðendur að uppfylltum nánari skilyrðum. Að teknu tilliti til framangreinds er ekki talið að undanþágan feli í sér brot á 11. og 16. gr. EES-samningsins.“ — Sem kveður á um að ekki megi vera um mismunun að ræða.

Það er sem sagt mat frumvarpshöfunda að frumvarpið muni ekki skapa vandkvæði með tilliti til ákvæða stjórnarskrárinnar eða alþjóðlegra skuldbindinga.

Mig langaði að nefna þetta og mig langar að nefna líka að ég sé hérna í samráðskafla frumvarpsins að Félag atvinnurekenda bendir á og vísar til þess í umsögn sinni að lagasetningin í Finnlandi um sölu áfengs öls á framleiðslustað sé í rauninni ekki gott fordæmi þar sem Finnarnir hafi einnig samhliða heimilað sölu áfengs öls í verslunum sínum. Þannig að ef þetta er viðmiðið þurfi mögulega að skoða þetta í því samhengi og ég býst við að nefndin geri það því að enginn vill brjóta EES-rétt. Ég hef fulla trú á að við finnum út úr því ef það er einhvers konar vandamál.

Forseti. Ég ætla ekki að hafa þetta lengra. Ég skil vel hv. þm. Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur sem segir að henni finnist þetta vera örskref, pínulítið skref, feimið skref, eins og hún orðaði það svo skemmtilega. Ég tek undir með hv. þingmanni og það er mín einlæga, staðfasta trú að við verðum að gera betur almennt í áfengislöggjöfinni okkar til þess að passa upp á að við séum ekki að brjóta á jafnræði á milli innlendra og erlendra aðila, að við séum ekki með ofboðslega stífan lagaramma í kringum einn hlut þegar hann er í einhverju öðru formi en samt með sömu afleiðingar á einhverjum öðrum stað o.s.frv. Fyrir mér er það frumvarp sem er hér til umræðu svo ofboðslega lítið atriði í því samhengi öllu sem varðar börnin okkar og forvarnir, áfengisgjald og auglýsingar og allt slíkt. Þetta hefur ekkert með það að gera. Það eina sem verið er að leyfa er að þeir einstaklingar sem stíga inn í brugghús til að kynnast því og fá að smakka á framleiðslunni fái að grípa með sér nokkrar flöskur heim. Þetta er ferðaþjónustumál. Þetta er landsbyggðarmál. Þetta er nýsköpunarmál. Þetta er mál sem mér finnst, virðulegur forseti, að við ættum öll að fylkja okkur á bak við og ég vona að nefndin muni vinna vel úr því.