152. löggjafarþing — 80. fundur,  24. maí 2022.

áfengislög.

596. mál
[21:32]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Hildi Sverrisdóttur fyrir fína ræðu og ætla að byrja á að segja að ég er í grundvallaratriðum sammála því sem þar kom fram þannig að ég er nú ekki að kalla eftir neinum skoðanaágreiningi eða úrslitum þar á.

Mig langaði hins vegar aðeins að grípa boltann þar sem hv. þingmaður talaði um að þetta væri svo lítið skref og þess eðlis að raunverulega tengdist það ekki áfengislöggjöfinni eða því sem við höfum verið að bauka við varðandi mögulegar breytingar þar á undanfarin ár, jafnvel áratugi, heldur væri þetta ferðaþjónustumál, eins og hefur svo sem komið ítrekað fram í máli þingmanna. Ég get tekið heils hugar undir það. Það breytir því samt náttúrlega ekki að þetta er breyting á áfengislögum.

Þá langar mig að varpa fram punkti, af því að ég veit að hv. þingmaður hefur lagt fram þingmannamál sem lýtur að því að jafnræðis verði gætt á milli innlendra og erlendra aðila í netverslun með áfengi. Við höfum svo árum skiptir tekist á um það hér í þingsal hvort einhverjar grundvallarbreytingar verði gerðar á áfengislöggjöfinni í frelsisátt, þ.e. hvort leyfa eigi áfengissölu í verslunum öðrum en einkaleyfisverslunum ríkisins. Og þá er tekist á um: Á það bara að vera bjór og léttvín? Á það ekki að vera neitt eða á það að vera sterkt vín líka? Þarna hafa línurnar legið. Ég tel á sama tíma að það sé skiljanlegt eftir áralanga baráttu sem ekki hefur þokað neinu áfram að tekin séu svona lítil skref. En þá erum við komin að því sem hv. þingmaður nefndi, hvort það sé möguleg hætta á að verið sé að brjóta einhverjar reglur, mismuna aðilum eða gera einhverjar breytingar sem hafa ófyrirséðar afleiðingar. Það er meiri hætta á því en væri mögulega ef við hefðum kjark og úthald til að breyta löggjöfinni heildstætt. Í ljósi þess að hv. þingmaður lagði fram þetta mál þegar samflokksmaður hennar er hæstv. dómsmálaráðherra, sem hefur þessi mál á sinni könnu, velti ég fyrir mér: Var aldrei inni í myndinni að vinna þetta mál þannig varðandi þessa breytingu að færa allt saman í einhverja stærri löggjöf?