152. löggjafarþing — 80. fundur,  24. maí 2022.

áfengislög.

596. mál
[21:38]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Eins og allir vita er glasið alltaf hálffullt í mínu lífi þannig að ég er ekki búin að gefa upp neina von um hvort þingmannamál mitt um netverslun muni fara í gegn eða hvort það sofnar í hinni ágætu allsherjar- og menntamálanefnd. Ég mun vera bjartsýn með það mál þangað til annað kemur í ljós. Hins vegar er það alveg ljóst og það þarf enginn að velkjast í vafa um það að þingflokkur Sjálfstæðisflokksins er mjög einhuga um bæði þessi mál og er almennt vakandi varðandi alls konar frelsiskref, ekki síst varðandi regluramma áfengislöggjafarinnar. Ég og hæstv. dómsmálaráðherra eigum kannski eftir að taka það samtal formlega. En ef svo illa fer að þingmannamál um netverslun dagar uppi í nefnd þá verður að sjálfsögðu leitað allra leiða sem tækar eru til að lengja líftíma þess máls og þá mögulega annars staðar ef það þykir vænlegra til árangurs. Þannig að stutta svarið er: Það er í einlægni þannig að það var lagt upp með þessi mál á þessu þingi eins og talið var líklegast til árangurs. Ef það gengur ekki eftir þá þurfum við bara að leita leiða út frá því hvað er talið líklegast til árangurs því að bæði þessi mál eru mikilvæg. Þau skipta máli. Þau eru ekkert til að óttast og við verðum að nálgast það þannig.