áfengislög.
Forseti. Bara svona fyrir forvitnissakir, og svo er að vísu önnur spurning líka — ég man ekki eftir að hafa séð hið margrómaða áfengisfrumvarp Sjálfstæðisflokksins síðan ríkisstjórn Viðreisnar, Bjartrar framtíðar og Sjálfstæðisflokksins var við völd, þegar Pawel Bartoszek, þáverandi þingmaður, tók það upp á sína arma og lagði það fram. Þar áður var það Teitur Björn Einarsson. Ég man ekki eftir því að hafa séð það síðan þá. Ég man allt í einu eftir því og átta mig ekki alveg á af hverju það hefur horfið úr augsýn. Þetta var alltaf staðlað mál sem var rætt af og til á þingi. Ég sakna þess sérstaklega af því að eftir að hv. þm. Pawel Bartoszek tók það upp á sína arma þá gekk hann beinlínis á milli þingflokksherbergja og spurði fólk: ,,Hvernig líst þér á þetta? Hvaða hugmyndir hefur þú?“ Hann vann rosalega vel í því að straumlínulaga það og aðlaga það að hugmyndum allra sem höfðu eitthvað til málanna að leggja. Maður veltir því fyrir sér hvað sé orðið af áfengisfrumvarpi Sjálfstæðisflokksins sem oft hefur litað umræður Alþingis á undanförnum árum svo skemmtilega.