152. löggjafarþing — 80. fundur,  24. maí 2022.

áfengislög.

596. mál
[21:42]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Þetta er bara frábær spurning því að það var einmitt sá þingmaður sem hér stendur, ásamt hv. þm. Teiti Birni Einarssyni og hv. þm. Pawel Bartoszek, sem stóð að því máli þingveturinn 2016–2017. Sá hryllilegi atburður gerðist að við duttum öll út af þingi haustið 2017 þannig að þannig fór um það mál.