áfengislög.
Forseti. Síðan eru liðin nokkur ár og mögulegt að skella því aftur fram, hefði ég haldið. Það gekk manna á milli hérna á árum áður. Hv. þm. Vilhjálmur Árnason flutti það einhvern tímann. Það er alla vega ekki ástæðan fyrir því að málið hefur ekki sést síðan þá, sem er bara áhugavert. Ég sá glitta í von um að það mál hefði meira að segja komist í gegn ef það hefði komist í atkvæðagreiðslu, þannig að ég hefði viljað sjá það aftur.
Svo er annað sem hv. þingmaður talaði um í ræðu sinni. Það er þetta ójafnræði á milli erlendra og innlendra aðila sem mér finnst gríðarlega áhugavert því að það er rosalega augljóst t.d. hvað varðar netverslun með áfengi þar sem innlendir aðilar eru nú í málsvörn út af sölu á áfengi á vefsíðu, á meðan hægt er að panta áfengi í gegnum erlendar vefsíður án þess að verið sé að elta þá aðila uppi fyrir einhvers konar brot á íslenskum lögum.
Ég vil örstutt velta upp því sem ég held að gerist af því að þetta misræmi er klárlega brot á EES-samningnum, myndi ég halda. Og það er þá Íslandi um að kenna að vera með þessar kvaðir á íslenska aðila. Málið fer því líklega þannig að þessir innlendu aðilar verða dæmdir brotlegir á Íslandi, þeir leita svo til evrópskra dómstóla vegna EES-samningsins og þar verður íslenska ríkið skammað fyrir að vera ekki búið að laga þetta. Maður veltir því fyrir sér hvort það sé ekki góð hugmynd að vera aðeins á undan þeirri niðurlægingu.