152. löggjafarþing — 80. fundur,  24. maí 2022.

áfengislög.

596. mál
[21:45]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Að öllu gríni slepptu í mínu fyrra svari þá gat ég bara ekki setið á mér fyrst hv. þm. nefndi nákvæmlega þetta mál. Það sem gerðist var að þessir aðilar duttu út af þingi og það varð þá bara annarra, eins og t.d. hv. þingmanns, að halda því máli á lofti.

Þar sem var spurt beint um aðkomu Sjálfstæðisflokksins þá ætla ég bara, eins og ég fór yfir í svörum mínum til hv. þm. Hönnu Katrínar Friðriksson, að vera einlæg með það að mér finnst ég vera að stíga skref sem eru raunhæf, sem eiga séns, þar sem við getum smám saman stigið í áttina að meira frelsi án þess að það sé kannski of stór biti til að kyngja í einu. Ég held líka, bara af virðingu við málið sem mörgum er erfitt og margir óttast, að við ættum frekar að stíga fleiri smærri skref en eitt risaskref. Ég held að það sé bara skynsamleg nálgun á þessu stigi málsins.

Varðandi mismunun á milli erlendra og innlendra aðila þá tek ég undir með hv. þingmanni. Það er fyrst og fremst forsendan fyrir því að ég legg fram þingmannamál mitt um netverslunina. Það er í rauninni ekki hægt að horfa upp á ósanngirnina sem felst í því að okkar frábæru innlendu framleiðendur með alla sína nýsköpun og dugnað reyna að gera vel, eru í ómögulegri samkeppni við aðila sem hafa það eitt fram yfir þá að vera staðsettir einhvers staðar annars staðar. Það er auðvitað alger grundvallarforsenda fyrir því máli. Ég lít svo á að með því að samþykkja það væri íslenska ríkið einmitt að reyna að stíga skref að koma í veg fyrir að málið fari á enn verri stað.