áfengislög.
Virðulegur forseti. Talandi um bjór og handverksbrugghús þá er mér í fersku minni þegar Gaukur á Stöng opnaði 1983 og var með svokallað bjórlíki. Af því að það fékkst ekki bjór á Íslandi þá var hellt vodka út í pilsner og svo voru sett einhver bragðefni með og þetta var kallað bjór. Af því að ég er búinn að standa í veitingarekstri allt mitt líf þá þekki ég svolítið vel til þar. Þegar bjórinn var leyfður 1. mars 1989 skipti það sköpum. Ég hef gaman af að geta þess hér að sá sem hér stendur opnaði og byrjaði með fyrsta handverksbrugghúsið á Íslandi. Það var í janúar eða desember, um áramótin 1996–1997 sem Hinn íslenski bjórkjallari opnaði í Kringlunni og var með brugghús.
Talandi um hvort það eigi að leyfa íslenskum handverksbrugghúsum að selja á staðnum þá er ég sannfærður um að flest þessara húsa græða ekki mikið af peningum. Þetta er meira stolt og áhugi á framleiðslunni en að þau græði á þessu, þannig að ég hvet ykkur til að samþykkja sölu á bjór á framleiðslustað. Þetta tengist oft veitingarekstri og það er stemning að fara og smakka bjórinn á staðnum og borða og geta tekið með sér sex bjóra eða eitthvað slíkt og það er ekkert því til fyrirstöðu að leyfa þetta undir eftirliti. Ég veit að Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins er með einkarétt á sölu áfengis í flöskum eða umbúðum. En það er eflaust hægt að finna út úr því hvernig hægt er að stjórna því hvernig áfengisgjaldið skilar sér, því að þetta snýst um það að ríkið fái áfengisgjaldið.
Svo hef ég líka hugmyndir varðandi öll þessi brugghús úti um allt land. Ég veit af fenginni reynslu að það er rosalega dýrt að setja upp svona brugghús þannig að þau eru ekki að græða. Það liggur alveg ljóst fyrir. En ég legg til að öll brugghúsin fái sameiginlegt sölusvæði í Reykjavík þar sem hægt verði að koma inn þeirra framleiðslu hvaðan sem er af landinu og af öllum tegundum og sortum sem þeir framleiða. Í dag er bara tekið inn ákveðið magn í Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins þannig að menn eru að keppast við að reyna að koma sínum bjór þar inn og það er ósanngjarnt. Þess vegna legg ég til að sett verði upp sameiginleg sala sem ríkið stjórnar á einhvern hátt.
En talandi um aðgengi ungs fólks að áfengi þá er ég klár á því að ein af aðalástæðunum fyrir því hversu vel hefur tekist til á Íslandi með að fá ungt fólk til að byrja seinna að drekka á lífsleiðinni eru forvarnir. Eftir að hafa verið í þessu umhverfi í öll þessi ár sem ég er búinn að vera þá veit ég að hvergi í heiminum þekkir almenningur eins vel til meðferðastöðva og á Íslandi. Hvert einasta mannsbarn sem ég veit um veit hvað það er að fara í meðferð. Það þekkist ekki annars staðar þannig að ég held að þetta sé partur af því að við höfum náð góðum árangri.