152. löggjafarþing — 80. fundur,  24. maí 2022.

áfengislög.

596. mál
[21:51]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Þetta er mál sem varðar í raun vímuefni. Eins og við höfum oft talað um hérna hafa Píratar verið að leggja áherslu á afglæpavæðingu vímuefna. Hérna erum við að tala um vímuefni sem er löglegt, meira en við höfum verið að tala um varðandi önnur vímuefni. Við höfum talað um ákveðin skref í áttina að því að hætta að refsa fólki fyrir að neyta annarra vímuefna sem annars eru ekki lögleg og munu halda áfram að vera það sem slík. En hérna erum við með vímuefni sem er löglegt og að sjálfsögðu er fullt af tengdum vandamálum þar sem þetta er nú ef eitthvað er bara sterkara vímuefni en mjög mörg önnur sem eru jafnvel ólögleg. Þá þarf alltaf að nálgast þann málaflokk af ákveðinni varúð en líka með opin augun gagnvart því að fólk neytir þessa vímuefnis og hefur gert það í þúsundir ára. Það er ekki að fara að breytast. Þetta er ekki að fara að hverfa úr mannlegu samfélagi. Þá ættum við að hugsa hvernig við kunnum sem samfélag að fara með þetta efni. Margir eru á því að þá þurfi að takmarka aðgengi og hafa boð og bönn o.s.frv. og það er einhvern veginn auðveldast. En við höfum alveg séð það að það virkaði í þveröfuga átt að banna hitt og þetta í sinni ýtrustu mynd. Neyslan minnkaði ekkert og fór bara neðan jarðar og tengdist glæpum og alls konar svoleiðis. Þegar áfengi var síðan lögleitt aftur þá hætti glæpastarfsemin í kringum það, sem er vísbending varðandi hin efnin sem eru ólögleg og tengd glæpastarfsemi, það er vísbending um hvar væri kannski hægt að gera betur ef við ætlum að læra af reynslunni.

Þegar allt kemur til alls snýst þetta um að við kennum fólki hvernig á að meðhöndla þessi efni. Þar kemur inn ákveðinn hlutur sem er áfengismenning. Hún hefur breyst stórkostlega mikið á undanförnum 30 árum frá því að bjórinn var leyfður, stórkostlega mikið. Það eru ekki lengur sveitaböll þar sem allir voru algerlega á rassgatinu eftir að hafa drukkið sterkt, blandað áfengi og það brutust út slagsmál og ég veit ekki hvað og hvað. Það er á allt öðrum skala núna, sú áfengismenning sem við búum við í dag, miklu léttari, þótt kannski sé verið að neyta meira áfengis í heildina, ég er ekki með tölfræðina á því alveg á hreinu, mig rámar í það. Þá eru vandamálin sem eru tengd þeirri samfélagslegu neyslu miklu minni. Þau eru að sjálfsögðu til staðar af því að þannig virkar mannfólkið að miklu leyti. Sumir eru einfaldlega með meiri næmni gagnvart þessum efnum og verða veikari fyrir meðan aðrir þola þau betur, mismunandi mikið eftir náttúrlega magni á neyslu o.s.frv. Þetta er eitthvað sem við vitum aldrei fyrir fram. Við vitum ekki fyrir fram þegar einhver drekkur áfengi hvort hann sé í rauninni með áfengisvandamál eða ekki fyrr hann drekkur fyrsta sopann, hvort hann kann að fara með það. Það er eitt af því sem ég hef séð hjá — ég held að nokkurn veginn allir strákarnir í gamla bekknum mínum hafi átt í vandræðum með áfengi, ég held að ég hafi verið sá eini sem ekki fór í meðferð vegna vandamála með áfengi, enda er ég voðalegur hænuhaus og drekk kannski einn eða tvo bjóra og þá er ég góður, eða tvo, þrjá, kannski þegar það er mikið partí. Það skorti algjörlega á það að kenna fólki hvernig á að drekka áfengi, þekkja áhrifin, hvað á að varast, því að hugmyndin um það hvað var alki var einhver sem var í rauninni róni, ekki einhver sem verður kærulaus þegar hann drekkur vín, ekki einhver sem er orðljótur og fer að húðskamma fólk eða eitthvað svoleiðis, ekkert endilega ofbeldistengt heldur koma bara upp ákveðin vandamál við neyslu á vímuefnum. Það þarf að átta sig á því að það er líka slík hegðun sem er varasöm, kæruleysi þegar viðkomandi er að drekka, að eyða óhóflega miklum pening. Einn sem ég þekki tæmdi alltaf debetkortið sitt í hvert sinn sem hann fór að drekka. Hann var ekkert slæmur með áfengi en hann tæmdi debetkortið sitt. Það er áfengisvandamál og fólk áttar sig ekki á því að það er margt annað sem er áfengisvandamál eða vandamál með vímuefni en að vera bara sífellt drukkinn, vera þessi klassíska steríótýpa af róna eða eitthvað þvílíkt. Við þurfum að gera betur í því og ég held að við höfum gert það á undanförnum árum, sérstaklega með opnara samfélagi tengdu þessu vímuefni, með ákveðnum skrefum í átt að frjálsræði, t.d. með því að leyfa bjórinn, sem var miklu vægari notkunarmöguleiki á þessu vímuefni en sterka áfengið. Það kenndi okkur, held ég, smám saman að það er hægt að umgangast þetta vímuefni á annan hátt en var, sem leiddi þá til þess að við stigum meira markviss skref til að kenna t.d. ungmennum á þetta og þegar allt kemur til alls mun það alltaf ná meiri árangri en bara að segja: Nei, þetta má ekki, nei, skamm, þú drepst úti í skurði ef þú tekur einn smók eða eitthvað svoleiðis. Það virkar ekki. Það er ekki skilvirk leið til að kenna fólki að vara sig á hættunni.

Þetta frumvarp, þó að það sé frekar einfalt hvað svona skref varðar, er ágætt skref en við mættum alveg íhuga ýmis önnur skref. Ég sæi fyrir mér t.d. einfalda viðbót við vínveitingaleyfi þar sem það væri heimilt að selja út úr húsi. Eins og er, er hægt að vera með vínveitingaleyfi en það má ekki selja þannig að viðkomandi yfirgefi staðinn með áfengi. Það er einföld viðbót við vínveitingaleyfiskerfið. Þá gæti staður sótt um að vera með vínveitingaleyfi, kannski bara til kl. 8 eða eitthvað svoleiðis, hann er ekki með matsölustað og kannski ekki einu sinni með sæti þar sem drukkið er inni, eða kannski hvort tveggja, kannski mat og vínveitingaleyfi, en ekki opið lengur en til klukkan eitthvað ákveðið. Það býr til mismunandi aðstæður um það hvernig haldið er utan um staðinn. Ef opið er fram yfir miðnætti eða eitthvað því um líkt, þar sem er vínveitingaleyfi, þarf dyravörslu. Þar sem er vínveitingaleyfi þar sem er opið til kl. 11 og seldur matur, af hverju má ekki bæta við vínveitingaleyfið að selja megi vín úr húsi? Kannski eru bara seld einhver léttvín þar. Það eru þessir möguleikar á samsetningu á því hvernig við meðhöndlum þetta efni sem við ættum að geta nálgast á yfirvegaðri hátt en við höfum gert í gegnum tíðina. Skref eins og þetta er ferðamannaskref en það er mjög skrýtið að setja það út í horn og láta það gilda um einhver smærri bjórfyrirtæki eða eitthvað því um líkt. Hér var talað um gin- eða vískiframleiðendur eða eitthvað því um líkt. Af hverju mega þeir ekki selja frá sínum stöðum og af hverju þarf það endilega bara að vera frá framleiðslustað? Ég átta mig bara ekki á því af því að lykilatriðið í þessu, eins og við ættum að hafa lært á undanförnum áratugum, er að já, aðgengi skiptir máli, en það sem skiptir miklu meira máli er að kenna fólki að meðhöndla þetta efni af því að það kemur alltaf ný og ný kynslóð af fólki sem kann það ekki. Ef við gleymum að kenna því það þá koma upp mikil vandamál.

Við vitum líka að ef við bönnum þetta bara, ef við kennum ekkert um þetta, þá verður það líka vandamál, enn stærra vandamál. Kennslan er einna mikilvægasti hluturinn. Við þekkjum alveg samfélög í Evrópu sem meðhöndla léttvín mjög frjálslega, þar sem meira að segja börn drekka útþynnt vín eða jafnvel ekki útþynnt, bara sopa, og læra þá að þetta er ekki eitthvað sem verið er að drekka til að vera rallandi fram og til baka og vitleysast eins og Íslendingar eru rosalega þekktir fyrir að gera út um allar koppagrundir. Þetta er það sem við þurfum að einbeita okkur að, þessi menning. Hvernig ætlum við sem Íslendingar að vera þekkt fyrir hvernig við meðhöndlum áfengi? Ég man alltaf eftir sögu sem var sögð um eitthvert diplómatapartí einhvers staðar í Svíþjóð þar sem var boðið upp á áfengi. Allir Íslendingarnir drápust. Frítt áfengi, júhú. Það er ekki eitthvað svoleiðis sem við viljum vera þekkt fyrir. Nú til dags sé ég þetta aldrei. Það heyrir til undantekninga að maður sjái einhvern sem drepst úti í horni. Kannski er ég ekki alveg eins mikið í þeim partíum og ég var þegar ég var yngri, en samt þá heyrði meira að segja til undantekninga ef einhver var dauður úti í horni. Það var meira þannig á þeim tímum þar sem sveitaballamenningin var enn við lýði og áður en bjórinn var leyfður.

Ég hvet alla vega hæstv. dómsmálaráðherra áfram í því að vinna svona mál og gera það á forsendum þess að vinna upp þá menningu sem við þurfum til að kunna að meðhöndla þessi efni sem fólk notar, hvort sem okkur líkar það betur eða verr. Eins og ég sagði, afleiðingin af því að hunsa það, að banna það, býr til glæpi, sem býr til fullt af ömurð. Skömmin er okkar ef við hunsum það. Við eigum að hætta að hunsa það og vinna að því á markvissan hátt að ef fólk velur að nota vímuefni á einn eða annan hátt þá kunni allir að bregðast við því, sérstaklega þeir sem nota þau, til þess að lenda ekki í vandræðum.