áfengislög.
Virðulegur forseti. Hér ræðum við alveg kostulegt mál. Við ætlum að gera smærri áfengisframleiðendum sem uppfylla ákveðin skilyrði laganna kleift að selja áfengt öl í smásölu á framleiðslustað. Við erum sem sagt að tala um að viðkomandi aðilar framleiða löglega vöru, hafa til þess leyfi og uppfylla allar reglur en mega ekki selja hana. Jú reyndar mega þeir alveg selja. Ef búið er að opna bjórinn og hann er afhentur geta þeir opnað veitingahús og selt bjórinn og ekkert vandamál með það. En ef viðkomandi ætlaði að kaupa bjórinn og opna hann heima hjá sér eða opna hann kannski bara ekkert, eiga hann sem minjagrip, þá má það ekki samkvæmt gildandi lögum.
Þannig að ég segi kostulegt, þetta er alveg kostulegt mál en það er ekki málið sjálft sem er kostulegt, það eru lögin, lagaramminn sem við erum með í dag, sem er algerlega kostulegur. Með þessu er ég örugglega búin að lýsa ágætlega afstöðu minni til þess einkaleyfis sem við erum með í dag í lögunum um sölu á áfengum drykkjum þegar um er að ræða lokaðar umbúðir. Mér finnst þetta svo mikilvægt því það er svo mikill tvískinnungur í þessu. Áfengissölustöðum hefur fjölgað gríðarlega á síðustu árum, alveg ofboðslega. Við sjáum þá spretta upp hérna allt í kringum vinnustaðinn okkar og úti um land allt, á veitingahúsum, krám, kaffihúsum, jafnvel bensínstöðvar eru að selja áfengi, en það er til neyslu á staðnum. En um leið og flaskan er lokuð þá má það ekki. Þá skal það vera starfsmaður ríkisins.
Á sama tíma erum við með regluverk í kringum alls konar hluti sem eru ekki venjuleg neysluvara; lyf, sprengiefni, byssur, en við erum ekki með einhver sérstök einkaleyfi um það eða byssusölu ríkisins eða sprengiefnasölu ríkisins eða lyfjasölu ríkisins. Við treystum alveg fyrirtækjum til að starfa undir þeim regluramma og fylgja þeim lögum og reglum sem settar eru í landinu.
En að þessu sögðu þá er það þannig, eins og hv. þingmaður sem var hérna á undan mér sagði, að Sjálfstæðisflokkurinn hefur ítrekað lagt til breytingu á þeim hluta er lýtur að einkasölu ÁTVR en enn erum við á sama stað. Þetta hefur aldrei farið í gegnum þingið. Það hefur nefnilega aldrei náðst samkomulag um að breyta því hér á þingi. Þá þýðir kannski ekkert að berja höfðinu við steininn endalaust og þess vegna held ég að sú leið sem hæstv. ráðherra er að leggja fram hér sé algerlega nauðsynlegt skref, kannski bara hænuskref, en ef það er hænuskrefið sem nær í gegn þá skulum við algjörlega byrja þar.
Ég ætla ekki að fara yfir það sama og fólk hefur verið að ræða hér. Þetta er ferðaþjónustumál, þetta er orðið landbúnaðarmál meira að segja, við getum alveg farið að ræða það á þeim vettvangi. Þetta er bara framleiðsla á vöru sem er lögleg, nýtur hylli, það hefur komið fram, fólk er að koma alls staðar að úr heiminum til að framleiða þannig að auðvitað er ekkert annað en sjálfsagt að leyfa þeim sem eru að framleiða þessa löglegu vöru að selja hana líka í lokuðum umbúðum beint frá staðnum, alveg eins og við höfum rætt hér um alls konar landbúnaðarframleiðslu og verið að ýta undir að hægt sé að selja beint frá býli. Þannig að ég styð þetta og hlakka til að fá þetta mál til umfjöllunar í allsherjar- og menntamálanefnd og vona svo innilega að við getum afgreitt það frá okkur og gert þetta að lögum fyrir sumarhlé.