152. löggjafarþing — 80. fundur,  24. maí 2022.

áfengislög.

596. mál
[22:20]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Veistu það, ég veit það ekki. Ég veit ekki hvort sú leið sem hv. þingmaður nefnir hefði gengið. Ég er ekki sannfærð um að svo sé. Það er rétt þegar við tölum um stóru áfengisfrumvörpin að þau hafa oft verið flutt hér í 1. umr. og af frummælendum þannig að verið væri að gera altækar breytingu, alveg afnema einkaleyfið en með þeim möguleika alltaf að það væri hægt að njörva það niður í nefnd og það er það sem nefndarstarfið er hugsað fyrir.

Ég held að við höfum verið komin með mjög góða leið á sínum tíma þegar við töluðum um að afnema einkasöluna, að við værum ekki að tala um samt sem áður að opna á það að vín yrði selt í matvöruverslunum heldur vorum við að tala um eitthvað sem héti búð í búðinni eða sem sagt að sérverslanir mættu selja áfengi. Það er sú aðferðafræði sem ég aðhyllist. Ég hef ekki verið frummælandi eða flutt svona frumvörp. Ég sjálf held að það væri ekki góð þróun að sjá bjór við hliðina á mjólk eða bleium í Bónus. Ég er ekki að tala fyrir þeirri leið. Mér finnst það bara svo mikill tvískinnungur og ég skil ekki að það sé raunverulegur vilji og trú fólks að það hafi eitthvað með forvarnir að gera hvort viðkomandi starfsmaður sem selji áfengið sé starfsmaður ríkisins eða starfsmaður einhvers ehf. fyrirtækis.