áfengislög.
Ég vísa aftur, virðulegur forseti, í reynslu mína varðandi síðasta skipti sem heildarfrumvarpið reyndi að fara í gegnum þingið. Þá var það alla vega þáverandi hv. þm. Pawel Bartoszek sem stundaði þetta einmitt. Hann gekk til allra þingflokka og reyndi að finna málamiðlunina í öllum atriðum frumvarpsins hjá flokkum. Ég fékk alla vega á tilfinninguna að það gæti mögulega farið í gegn. Ég held að það vanti meira af svoleiðis samvinnu í þinginu. Út af því hvernig aðstæðurnar eru, hvernig minni hluta og meiri hluta er háttað, þá er ég alla vega á þeirri skoðun að sú ábyrgð liggi alltaf hjá meirihlutaflokkunum. Hún gerir það að mínu mati. Samstarfsskrefið hefst alltaf hjá þeim sem eru hvort eð er búnir að taka sér meirihlutann. Minni hlutinn hefur aldrei möguleika á samstarfsskrefum nema upp á náð og miskunn meiri hlutans sem þýðir að frumkvæðið til þess er hjá meiri hlutanum og það var það sem Pawel gerði. Og hann gerði það fannst mér mjög vel og ég myndi vilja sjá meira svoleiðis.