152. löggjafarþing — 80. fundur,  24. maí 2022.

áfengislög.

596. mál
[22:32]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Hafdísi Hrönn Hafsteinsdóttur fyrir ágæta yfirferð um sjónarmið hennar og flokks hennar, Framsóknarflokksins, í þessum málum. Ég er aðeins að velta því fyrir mér, ég vona að ég hafi skilið málið rétt, að hv. þingmaður — og nú ætla ég að leyfa mér að fara út fyrir þetta tiltekna mál af því að við höfum farið svolítið vítt og breitt um áfengislöggjöfina í þessari umræðu hér, höfum nýtt tækifærið. Ef ég skil hv. þingmann rétt þá er hún hlynnt auknu aðgengi ríkisrekinna áfengisverslana en ekki afnámi einkaleyfis á þann hátt að aðrir en ríkisstarfsmenn fái að selja áfengi, að teknu tilliti til þessa sérstaka fráviks sem við erum að ræða hér. Sem sagt, hún er ekki til í að galopna allt, þannig var orðalagið. Ég er aðeins að reyna að átta mig á því hver tengslin þarna eru vegna þess að ég var flutningsmaður máls, sem dagaði uppi fyrir nokkrum árum, um afnám einkaleyfis ÁTVR að gefnum ákveðnum skilyrðum þannig að áfengi yrði selt í sérverslunum. Ég heyri ekki betur en að ég og hv. þingmaður séum sammála um þau skilyrði, þ.e. við viljum ekki endilega sjá þetta sem fyrsta skref í matvöruverslunum. Við viljum hafa skýr skilyrði, stýringu á þessum málum. Við viljum aukna kynningu. Við viljum efla mótvægisaðgerðir til að gæta að lýðheilsu. Munurinn liggur í því að ég tel að hægt sé að gera þetta þó svo að einkaleyfi ríkisins sé afnumið en ef ég skil þingmanninn rétt vill hún halda því, þ.e. halda einkaleyfi ríkisins á sölunni. Mig langar að forvitnast um það, ég átta mig ekki á tengslunum: Telur hv. þingmaður að ekki sé hægt að ná þessum markmiðum sem þingmaður fer yfir hér, og gefa þetta frjálst, bara að hafa skilyrðin þannig að einkaleyfið sé afnumið en þessum skilyrðum haldið?