áfengislög.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Þá ætla ég bara að svara þessu beint: Ég er ekki hlynnt því að við afnemum einkasölu á áfengi að svo stöddu. Mér finnst rökrétt fyrsta skref að við aukum þjónustu Vínbúðarinnar með því að rýmka opnunartíma og taka út þá forræðishyggju sem er í löggjöfinni og fella niður bann við því að hafa opið á ákveðnum dögum. Ég sé ekki nauðsyn á því að við séum með ákveðið bann þarna. Ég er ekki alveg hlynnt því að við förum alveg í einkasöluna af því að mig langar að sjá hvaða skref við getum stigið í þessa átt og mér finnst þetta vera rökréttasta fyrsta skrefið, að við rýmkum opnunartíma Vínbúðarinnar og sjáum hverju það skilar okkur. Og svo finnst mér að við þurfum að þroskast með umræðunni um áfengislöggjöfina og ég ætla bara að segja alveg eins og er: Mér finnst við vera rétt að byrja.