áfengislög.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Mér finnst þetta mjög mikilvæg umræða þó svo að þetta sé sannarlega ekki í fyrsta skipti — vegna þess að ég skil og ber virðingu fyrir afstöðu hv. þingmanns, en ég er algerlega ósammála vegna þess að ég lít akkúrat svo á að hvert skref sem tekið er í þá átt að auka aðgengi að áfenginu, sem er innan einkaleyfiskerfis ríkisins, séum við að segja: Þetta þarf ekki að vera þar. Mér finnst alger óþarfi að halda þessu þar, að halda þessu einkaleyfi á sama tíma og við erum að auka aðgengið, vegna þess að þessu einkaleyfi er og hefur verið viðhaldið, a.m.k. að stærstum hluta til þess einmitt að þrengja og stýra aðgenginu, m.a. þá af lýðheilsuástæðum, en líka bara af því að kerfið er seigfljótandi og það er oft erfitt að breyta. En að breyta þessu í frjálsræðisátt innan þessa kerfis finnst mér einhvern veginn bara svo fullkominn óþarfi. Ég myndi nefnilega vilja taka fyrst hitt skrefið og slaka svo á aðgenginu. En svona er þetta bara, við höfum mismunandi skoðanir á þessu og það getur vel verið að ef við færum af stað frá sitthvorri marklínunni í sömu áttina, eftir sitthvorri aðferðafræðinni, að við enduðum á sama tíma. Það getur vel verið. En það sem stendur kannski upp úr er að mér finnst nefnilega svo sérstakt að sjá ÁTVR með sitt einkaleyfi vera að rýmka opnunartíma, fjölga stöðum og gera hitt og þetta en ríghalda samt í eitthvert einkaleyfi. Mér finnst þetta bara vera markleysa. Ég sé ekki hættuna við það að hér spretti upp sérverslanir sem ekki eru háðar þessi einkaleyfi, þ.e. að það sé bara gefið frjálst. En við getum síðan haft alla þá stýringu sem okkur lystir að hafa líkt og við gerum í atvinnurekstri almennt. En alla vega, ég veit eiginlega ekki hver spurningin er. Við erum bara ósammála hér. En umræðan er góð þannig að ég læt það bara í hendur hv. þingmanns að nota lokamínúturnar.