áfengislög.
Virðulegi forseti. Það er alltaf gott að vera ósammála. Ég fagna því þegar við erum ekki sammála um hlutina því að þá fer fram heilbrigð umræða. Þar getur við „actually“ þroskast, afsakið orðbragðið, þar getum við raunverulega þroskast með umræðunni, sem ég tel að við þurfum að gera. Við þurfum að þroskast með umræðunni sem samfélag. Ef við ætlum að stíga þetta skref þarf það að vera tekið eftir þroskaða umræðu, eftir ábyrga umræðu. Og við þurfum að líta til allra sjónarmiða, ekki bara taka þetta út frá geðþóttasjónarmiðum af því að einkageirinn krefst þess.
Það sem ég er svo hlynnt varðandi ÁTVR, að hafa þetta í ákveðnu stýrðu umhverfi, er það að við erum ekki með söluhvetjandi sjónarmið líkt og hættan er þegar sala á áfengi er komin í einkarekstur. Þá fara gróðasjónarmið hugsanlega að ráða ríkjum, hvað þú selur og hvernig þú átt að selja vöruna. Sú er ekki raunin í því umhverfi sem áfengissala er í dag og mér finnst ótrúlega mikilvægt að við þroskumst með umræðunni, að við leyfum okkur að vera ósammála, að við tökum umræðuna og við gerum það á skynsamlegan hátt, því að þannig getum við hugsað til framtíðar hvernig við ætlum að haga þessum málum í samfélagi okkar. Lýðheilsusjónarmið og forvarnasjónarmið þurfa alltaf — alltaf — að vera þar leiðarljós.