152. löggjafarþing — 80. fundur,  24. maí 2022.

áfengislög.

596. mál
[22:41]
Horfa

dómsmálaráðherra (Jón Gunnarsson) (S):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að þakka fyrir málefnalega umræðu í kvöld og fagna því hversu margir eru hlynntir þeim breytingum sem hér eru kynntar þó að vissulega sé um að ræða hænuskref í þessari löngu baráttu. Ég settist á Alþingi fyrir um 15 árum síðan og ég held að það hafi nánast verið á hverju einasta þingi síðan þá sem lagt hefur verið fram frumvarp sem snýr að áfengismálum. Ég hef stundum orðað það þannig að mér finnst þingið hafa algerlega brugðist í því að taka til hendinni í þessum málaflokki vegna ágreinings sem þar hefur verið og ekkert af þessum frumvörpum sem hafa verið lögð fram á undanförnum árum, ár eftir ár, hefur ratað hér inn í þingsal aftur eftir framsögu þess og málsmeðferð í nefnd þannig að vonandi er að verða breyting á því. Vissulega gefur umræðan manni alla vega væntingar um það að hér sé að verða breyting á hugarfari og að augu fólks séu að opnast fyrir því að við erum með mjög gamla löggjöf og við þurfum að færa okkur betur til nútímans í breyttum útfærslum og í þjónustu við fólkið.

Það eru nokkur atriði sem hafa verið reifuð hér í kvöld og mig langar að minnast á. Það hefur verið talað um þetta hámark sem er sett í þessu frumvarpi, 500.000 lítrar og af hverju það er, af hverju mörkin í þessu frumvarpi eru dregin þarna. Það er fyrst og fremst vegna þess að horft var til markaðsaðgangs fyrirtækjanna. Við erum með 28 framleiðendur á áfengu öli í landinu. Þar bera tveir framleiðendur höfuð og herðar yfir alla aðra. Það eru um 20–21 milljón lítra seldir á ári. Af því framleiða 25 litlir framleiðendur 477.000 lítra í heildina. Einn af þessum framleiðendum, Kaldi, sem hér hefur verið nefndur, bjórframleiðandi fyrir norðan, framleiðir um það bil sama magn og allir hinir litlu framleiðendurnir 25 til samans. Aðgengi að markaðnum, aðgengi að útsölustöðum Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins, er allt annað. En hér er vissulega álitaefni á ferð og ég hvet nefndina til að skoða þetta sérstaklega. Þetta frumvarp er hugsað til þess að styðja við þessa litlu framleiðendur. En hver þau skref sem stigin verða finnast mér vera góð og í aukna frelsisátt í þessum málum, þó að ég vilji hafa þar ákveðnar takmarkanir.

Við erum á svipuðum slóðum og Finnar í þessum málum. Þó er það þannig að Norðurlandaþjóðir, eins og Norðmenn og Svíar, eru með einkasöluleyfi líka. Hér var nefnt hvort við gætum verið að mismuna framleiðendum, sem sagt hvað varðar heimild þeirra til að selja og að þetta myndi þýða að það yrði jafnvel til ákærumál út úr því. En fordæmin eru til staðar, eins og hjá þessum nágrannaþjóðum okkar sem eru með einkasölu ríkisins á áfengum drykkjum. Þær hafa rýmkað reglurnar í raun mun meira en við erum að gera hér. Þar er til að mynda leyfilegt að selja áfengt öl í matvöruverslunum, bæði í Noregi og Svíþjóð. Ég veit ekki hvort við eigum að ganga svo langt. Ég vil reyndar sjálfur sjá þetta fara í sérverslanir og tel að aðkoma ríkisins að því sé algjörlega óþörf, svo það sé á hreinu, enda hef ég verið stuðningsmaður, held ég, flestra þeirra áfengisfrumvarpa sem lögð hafa verið fram af þingmönnum Sjálfstæðisflokksins í gegnum tíðina.

Einnig var komið inn á þennan skattafslátt í þeim efnum. Einn hv. þingmaður nefndi hér að eðlilegt væri að veita einhvern afslátt af áfengisgjaldi gagnvart innlendum framleiðendum. Svona án þess að vilja fullyrða það alveg ákveðið þá tel ég að við myndum ekki geta komist upp með slíkt, að mismuna í gjaldtöku innlendum framleiðendum umfram innflutningsaðila einfaldlega vegna þeirra viðskiptasamninga sem við erum með. Er ég þar fyrst og fremst að vitna í samninga okkar við EES-þjóðirnar.

Eins og fram hefur komið þá er frumvarp hér í þinginu frá hv. þm. Hildi Sverrisdóttur sem er einmitt svolítið í anda okkar Sjálfstæðismanna þar sem fjallað er um þessa umdeildu netverslun og það eru dæmi sem eru í skoðun núna í ráðuneytinu, hvar við stöndum í þeim efnum. Það er full ástæða til að skoða allt regluverk í kringum áfengissölu. Eins og ég segi er þetta gömul löggjöf og það er ástæða til að uppfæra hana til nútímans. Ég tel það frumvarp sem hv. þm. Hildur Sverrisdóttir er með mjög gott og vonast til þess að við fáum tækifæri til að greiða um það atkvæði í þingsal fyrir þinglok. Ég tel það mjög mikilvægt. Það tekur stærri skref en ég boða í þessu frumvarpi. En reynslan sýnir manni kannski að það verður að borða þennan fíl í mörgum bitum og við verðum að aðlaga okkur að þessum breytingum á einhverjum tíma. Þannig er svo sem saga okkar í þessum efnum. Það var minnst á það hér áðan þegar ölið var leyft hér í almennri sölu, það var barátta sem við munum mörg eftir.

Ég hvet nefndina til að skoða þetta og nýta okkur þann jákvæða anda sem hér birtist í umræðunni gagnvart þessum breytingum og þá hvatningu sem hv. þingmenn hafa komið hér fram með um að ganga jafnvel enn lengra. Málið er á forræði þingsins og ég tel að ef við náum því að rýmka þetta mál, ég tala nú ekki um ef við næðum að fá frumvarp hv. þm. Hildar Sverrisdóttur út úr nefnd þá gætum við mjög vel unað við breytingar á þessu þingi. Það væru gríðarlega jákvæðar og góðar breytingar.

Hv. þm. Andrés Ingi Jónsson minntist á það hér að málið hefði verið lagt fram í fyrra og með meiri fyrirvara. Það er alveg rétt. Þá hafði frumvarpið, sem er lítið breytt, nokkuð langan tíma í umræðu og í málsmeðferð í þingnefnd en náði ekki inn í þingsal. Ég tel að út frá því geti nefndin takmarkað mjög umfjöllun sína í þetta sinn vegna þess að málsmeðferð um svipað dæmi hefur farið fram. Þess er ekki að vænta að afstöðubreyting sé svo mikil hjá umsagnaraðilum að það þurfi til að mynda að kalla alla til fundar við nefndina að nýju og því sé hægt að hraða þessu máli í gegn. Ég hvet nefndina til að gera það. Ef samstaða er um að ganga jafnvel enn lengra í frelsisátt í þessum efnum en hér er boðað þá hvet ég hana jafnframt til að taka til umfjöllunar það frumvarp sem ég hef nefnt hér áður frá hv. þm. Hildi Sverrisdóttur og koma því út úr nefnd líka þannig að við megum nú taka hér einhver alvöruskref í þessum málum.