almenn hegningarlög.
Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti allsherjar- og menntamálanefndar um þetta frumvarp sem ég ætla að segja að er mjög mikilvægt mál. Það tekur á barnaníðsefni, hatursorðræðu, mismunun og fleiri þáttum. Mig langar líka að geta þess að samkvæmt frumvarpinu þá eiga lögin að taka gildi nú þegar. Nefndin afgreiddi þetta nefndarálit út 7. apríl síðastliðinn. Ég er að ítreka þessa dagsetningu hér vegna þess að þetta hefur beðið að mínu viti allt of lengi af ástæðum sem flestir sem hér eru inni þekkja, það hefur bara fátt komist á dagskrá. Þetta er eitt af þeim málum sem er búið að bíða í of langan tíma og ég veit, virðulegur forseti, að það er kallað eftir því úti í samfélaginu af þeim sem fjalla um þessi mál.
Með þessu frumvarpi er verið að leggja til breytingar á nokkrum ákvæðum almennra hegningarlaga. Lagt er til að við ákvörðun hegningar, samanber 70. gr. laganna, beri að taka til greina hvort brot megi rekja til nánar tilgreindra atriða er varða brotaþola persónulega og brot sé þannig af meiði hatursglæpa, auk þess sem lagt er til að að jafnaði skuli taka það til greina til þyngingar refsingar ef brot er framið í nærveru barns yngra en 15 ára.
Í öðru lagi er lagt til að hatursorðræðuákvæði 233. gr. a laganna verði rýmkað þannig að þjóðlegur uppruni falli þar undir sem og að ákvæðið veiti fólki með fötlun og fólki með ódæmigerð kyneinkenni refsivernd til samræmis við aðra hópa sem eru taldir þurfa á sérstakri vernd að halda.
Þá er lögð til hliðstæð breyting á 1. mgr. 108. gr. almennra hegningarlaga um bann við mismunun vegna kaupa á vöru og þjónustu.
Í fjórða lagi eru lagðar til breytingar á barnaníðsákvæði 210. gr. a laganna að því er varðar framsetningu, hámarksrefsingu og gildissvið ákvæðisins.
Loks er lagt til að við lögin bætist nýtt ákvæði, 210. gr. c, um innbyrðis ítrekunartengsl barnaníðsákvæðanna, þ.e. 210. gr. a og 210. gr. b laganna.
Í umræðu um þetta mál áttum við samráð við fjölda aðila og fengum töluvert af mjög góðum umsögnum og vil ég þakka þeim aðilum sem sendu inn umsagnir. Við fengum einnig fjölmarga gesti á fund okkar og eru þeir tilgreindir sérstaklega í nefndarálitinu.
Nefndin telur að þær breytingar sem eru lagðar til með frumvarpinu séu mikilvægar og tímabærar þar sem þær fela í sér aukna réttarvernd barna og sporna gegn hatursorðræðu og mismunun við afhendingu á vöru og þjónustu. Með frumvarpinu er m.a. brugðist við athugasemdum eftirlitsaðila vegna alþjóðlegra mannréttindaskuldbindinga Íslands og breyttum samfélagslegum viðhorfum til þeirra brota og þeirrar háttsemi sem það tekur til. Umsagnaraðilar voru almennt jákvæðir um efni frumvarpsins.
Mig langar að geta þess sérstaklega að ég hef á fundum mínum erlendis orðið þess áskynja að þar sem verið er að birta ákveðið landakort og fara yfir það hvernig lönd hafa staðið sig í þessu lagaákvæði þá höfum við einmitt verið svolítið með gult ljós því að það hefur í rauninni verið bið eftir því að við getum brugðist við með þessum hætti. Þess vegna er þeim mun mikilvægara að við séum að gera það núna.
Barnaníðsákvæði 210. gr. a laganna eða 3. gr. frumvarpsins. Við meðferð málsins í nefndinni var einkum rætt um þær breytingar sem lúta að þessu barnaníðsákvæði. Samkvæmt 1. mgr. 3. gr. frumvarpsins skal hver sem framleiðir, flytur inn, aflar sér eða öðrum, dreifir eða hefur í vörslum sínum myndefni sem sýnir kynferðislega misnotkun á barni eða sýnir barn á kynferðislegan hátt, sæta sektum eða fangelsi allt að sex árum. Samkvæmt 2. mgr. frumvarpsgreinarinnar skal hver sem skoðar myndefni á netinu eða með annarri upplýsinga- eða fjarskiptatækni sem sýnir kynferðislega misnotkun á barni eða sýnir barn á kynferðislegan hátt, sæta sömu refsingu.
Fyrir nefndinni var sérstaklega rætt um 3. mgr. 3. gr. frumvarpsins þar sem kveðið er á um að 1. og 2. mgr. gildi ekki um þann sem býr til, skoðar eða hefur í vörslum sínum efni sem sýnir barn 15, 16 eða 17 ára, ef barnið hefur veitt samþykki sitt og báðir aðilar eru á svipuðum aldri og þroskastigi. Þá gilda ákvæði 1. og 2. mgr. ekki heldur um barn 15, 16 eða 17 ára sem miðlar efni sem sýnir það sjálft. Rökin að baki ákvæðinu eru m.a. þau að stafræn samskipti og dreifing myndefnis á meðal ungmenna verður sífellt algengari og ekki þykir rétt að gera slíka háttsemi refsiverða í öllum tilfellum.
Við meðferð málsins var rætt um áskilnað 3. mgr. um samþykki og mögulega sönnunarbyrði vegna þessa. Í greinargerð frumvarpsins kemur fram að miðað verður við að ótvírætt samþykki liggi fyrir og allur vafi þar um verði túlkaður þeim sem myndefnið er af í hag og þá er honum að sama skapi í lófa lagið að afturkalla slíkt samþykki hvenær sem er. Fyrir nefndinni var bent á að í mörgum ákvæðum almennra hegningarlaga er gerður áskilnaður um samþykki, m.a. í nauðgunarákvæði 194. gr. laganna. Sönnunarstaða um samþykki getur verið erfið en ekki á að vera um að ræða öfuga sönnunarbyrði. Í því sambandi undirstrikar nefndin það sem fram kemur í greinargerð frumvarpsins um að vafi um samþykki verði túlkaður þeim sem myndefnið er af í hag og bendir á að í 108. gr. laga um meðferð sakamála, nr. 88/2008, hvílir sönnunarbyrði um sekt ákærða og atvik, sem telja má honum í óhag, á ákæruvaldinu.
Fyrir nefndinni var jafnframt rætt um ráðgjöf og stuðning við þá sem brjóta gegn börnum og mikilvægi þess að fagleg sálfræðimeðferð standi þeim til boða auk annarra stuðningsúrræða að lokinni afplánun. Fyrir nefndinni var lögð áhersla á að þetta skipti máli til að draga úr ítrekunartíðni barnaníðsbrota. Nefndin tekur undir mikilvægi þess að stjórnvöld hugi að endurkomu einstaklinga sem brotið hafa gegn börnum út í samfélagið, m.a. með því að veita þeim aðgengi að sálfræðimeðferð og félagsráðgjöf meðan á afplánun stendur og eftir að henni lýkur.
Hatursorðræða, 5. gr. Við meðferð málsins í nefndinni var rætt um rýmkun hatursorðræðuákvæðis 233. gr. a almennra hegningarlaga. Fyrir nefndinni kom fram að enda þótt brot gegn 233. gr. a sæti opinberri ákæru berist lögreglu ekki margar tilkynningar um brot gegn ákvæðinu. Bent var á að ástæða þess gæti m.a. verið sú að almenningur þekkir ekki ákvæðið nægilega vel eða að þeir einstaklingar sem ákvæðinu er ætlað að vernda séu berskjaldaðir, oft í viðkvæmri stöðu og þurfa stuðning við að tilkynna um hatursorðræðu og fylgja málinu eftir. Jafnframt skiptir máli að lögreglan fái nauðsynlega fræðslu um hatursorðræðu. Nefndin telur af því tilefni mikilvægt að fylgst verði með framkvæmd 233. gr. a almennra hegningarlaga og hvort frekari kynningar á hatursorðræðu og afleiðingum hennar sé þörf.
Að framansögðu virtu leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt. Undir nefndarálit þetta rita auk þeirrar sem hér stendur hv. þingmenn Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, Birgir Þórarinsson, Jódís Skúladóttir, Jóhann Friðrik Friðriksson, Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir og Logi Einarsson. Bergþór Ólason og Eyjólfur Ármannsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins en Sigmar Guðmundsson áheyrnarfulltrúi er samþykkur áliti þessu.
Virðulegur forseti. Ég vil bara ítreka það sem ég sagði áðan um mikilvægi þess að þetta mál fái hraðan og öruggan framgang hér í þinginu. Ég nefndi að ýtt hefur verið á það af þeim sem til þekkja og eru að fást við þessi mál. Einnig vil ég taka fram varðandi áhersluna á að þeir sem eru upplýstir um brot á börnum — þ.e. umræðan sem átti sér stað í nefndinni var að eitt væri að vera með refsiákvæði hér, sem er mjög mikilvægt. En það eitt og sér kemur því miður ekki í veg fyrir þessi brot og þess vegna er mikilvægt að vinna líka með aðstoð til handa þeim einstaklingum. Rætt var sérstaklega um sálfræðimeðferð og félagsráðgjöf og áttum við jafnframt ágætissamtal við hv. formann velferðarnefndar um þetta málefni. Þetta er eitt af þeim málum þar sem allsherjar- og menntamálanefnd og velferðarnefnd þurfa að koma saman því að þarna er sitthvort ráðuneytið undir og ofboðslega mikilvægt að við finnum leið til að vinna með þetta til að tryggja enn frekar öryggi barna.