152. löggjafarþing — 80. fundur,  24. maí 2022.

almenn hegningarlög.

389. mál
[23:00]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég vildi fá að koma örstutt upp í pontu í þessu mjög mikilvæga máli. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir yfirferðina yfir nefndarálit hv. allsherjar- og menntamálanefndar, sem mér fannst hljóma vel. Ég vil líka taka heils hugar undir orð hennar um að þetta mál sé mjög brýnt. Það er ánægjulegt að heyra að um það ríki þverpólitísk sátt enda á því að heyra að það er vel unnið. Ég held að við getum örugglega flest ef ekki öll tekið undir að það sé í nákvæmlega þessum tilvikum sem við finnum virkilega fyrir því að við séum að gera svolítið gagn hér í þessum sal.

Frumvarpið kveður m.a. á um að refsirammi fyrir barnaníð verði hækkaður úr tveggja ára hámarksfangelsi í sex ár. Eins og fjallað er um í greinargerð með frumvarpinu er sú breyting til samræmis við það sem þekkist í löndunum í kringum okkur. Rökin fyrir breytingunni eru þó ekki aðeins að halda í við réttarþróun erlendis og þau eru heldur ekki aðeins bundin við að styrkja réttarvernd barna, heldur felur frumvarpið einnig í sér mikilvæg refsipólitísk skilaboð um stafrænar birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn börnum. Samhliða hinni stafrænu samfélagsbreytingu, sem hefur haft umbyltandi áhrif á íslenskt samfélag eins og önnur, hafa börn og ungmenni tekið tæknina í sínar hendur og það föstum tökum. Það felur í sér mikil tækifæri fyrir einstaklinga og samfélag enda líklegt að hugvit, nýsköpun og tæknifærni verði burðarásar hagkerfis framtíðarinnar. Við verðum hins vegar að tryggja öryggi barna í því.

Tölfræði lögreglustjóra um kynferðisbrot sýnir sömu þróun og fjallað hefur verið um í fjölmiðlum, að börn verði í auknum mæli fyrir stafrænum birtingarmyndum kynferðisofbeldis. Löggjöfin nú tekur ekki nægilegt mið af þeirri stöðu og þeim alvarlegu afleiðingum sem brot af þessum toga geta haft í för með sér fyrir þolendur.

Umsagnaraðilar í þinglegri meðferð eru sammála um að málið sé mikilvægt framfaraskref og þingnefnd hefur afgreitt málið með tillögu um að það verði að lögum án breytinga, eins og hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir fór yfir áðan. Ég tek undir með henni að lokum og vona að málið fái skjóta framgöngu, enda brýnt.