152. löggjafarþing — 81. fundur,  30. maí 2022.

varamenn taka þingsæti.

[15:02]
Horfa

Forseti (Oddný G. Harðardóttir):

Föstudaginn 27. maí barst bréf frá 10. þm. Reykv. n., Andrési Inga Jónssyni, um að hann verði fjarverandi á næstunni. Þann dag tók sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Pírata í kjördæminu, Lenya Rún Taha Karim. Einnig hefur borist bréf frá 10. þm. Norðaust., Jódísi Skúladóttir, um að hún geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Í dag tekur því sæti 2. varamaður á lista Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í kjördæminu, Kári Gautason, en 1. varamaður á lista hefur boðað forföll.

Lenya Rún Taha Karim og Kári Gautason hafa áður tekið sæti á Alþingi og eru boðin velkomin til starfa að nýju.