152. löggjafarþing — 81. fundur,  30. maí 2022.

móttaka flóttamanna.

[15:08]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina sem var bæði um hið sértæka og hið almenna. Af því að hv. þingmaður spyr um stefnu minnar hreyfingar þá má auðvitað lesa hana út úr tölunum því að það liggur algerlega fyrir að þeim hefur fjölgað umtalsvert sem hafa fengið vernd hér á landi frá því að núverandi ríkisstjórn tók við í lok árs 2017. Ef við tökum bara fjöldann síðan þá, þá hafa tæplega 3.400 einstaklingar fengið vernd hér á Íslandi. Þetta má líka lesa út úr alþjóðlegum samanburði. Þegar við berum saman hvað við tökum á móti mörgum hér á Íslandi miðað við til að mynda önnur Norðurlönd þá held ég að við getum sannast sagna sagt að við Íslendingar stöndum okkur í því að taka á móti fleirum en við höfum áður gert. Hins vegar, af því að hv. þingmaður spyr líka um hið sértæka, má vafalaust ýmislegt gera betur í þeim málum. Ég las líka þetta viðtal sem síðan hefur verið rætt um af hálfu Útlendingastofnunar. Ég vil um það segja að mér þykir mjög leitt að heyra af upplifun þessarar fjölskyldu sem rætt var við í Fréttablaðinu um helgina. Mér finnst liggja algerlega ljóst fyrir að við eigum að taka það alvarlega þegar slíkar ábendingar berast. Það hefur verið ákveðið að bæði framkvæmdahópur og stýrihópur um móttöku flóttafólks frá Úkraínu muni heimsækja þessi búsetuúrræði til að ganga úr skugga um að viðeigandi lagfæringar hafi verið gerðar sem bent var á að þyrfti að gera í úttekt Rauða krossins frá 18. maí síðastliðnum. Það er auðvitað eðlilegt að við leggjum okkur öll fram um að bæta móttöku fólks og gerum betur í þeim efnum. Það eru margar áskoranir en mikill vilji til að leysa úr því. Þannig að ég vil segja já, við höfum verið að taka á móti fleirum. Er hægt að gera betur? Alveg örugglega og við eigum að taka það alvarlega þegar við lesum svona frásagnir og brugðist hefur verið við með þessum hætti. (Forseti hringir.) Hv. þingmaður spyr síðan um það mál sem mest hefur verið til umræðu og ég verð að koma að því í seinna svari