samþjöppun veiðiheimilda.
Virðulegur forseti. Það er framför að við erum komin með ráðherra sem er reiðubúin til að fara raunverulega ofan í samþjöppun í íslenskum sjávarútvegi. Það var ekki síðustu fjögur árin, á síðasta kjörtímabili, þannig að það er framför. Hitt er síðan að við skulum ekki vera einfeldningar í þessu. Ég veit að samráðsnefndin er á leiðinni, en ég vil líka benda á að þetta eru 27 einstaklingar. Á endanum kemur þetta hingað inn í þingsal. Við þurfum að taka pólitíska afstöðu til ákveðinna mála, m.a. um tímabindingu samninga. Reynsla mín á síðasta kjörtímabili er sú í gegnum stjórnarskrárvinnuna að það var alltaf einn flokkur sem stoppaði það mál, einn flokkur. Framsóknarflokkurinn og Vinstri græn eru fylgjandi tímabindingu samninga en Sjálfstæðisflokkurinn ekki. Og þegar við komum að þessum stóru prinsippmálum þá þurfum við hér í þinginu að taka afstöðu til þeirra. Þess vegna vil ég undirstrika það að já, Viðreisn er sko tilbúin í það að taka á tímabindingu samninga, taka á samþjöppun, auka gegnsæi í sjávarútvegi. Allt þetta liggur fyrir. Við erum með öll þessi mál ár eftir ár liggjandi fyrir þinginu. En er ráðherra reiðubúin til þess að leita til okkar hérna í þinginu, til stjórnarandstöðunnar, til þess einmitt að knýja á um mál sem eru gegn vilja Sjálfstæðisflokksins, eins og gert var m.a. í þungunarrofsmálinu þar sem forysta Sjálfstæðisflokksins greiddi atkvæði gegn ríkisstjórnarmáli? Við erum reiðubúin til þess að styðja ríkisstjórnina í þessu, styðja ráðherrann í þessu og ég vil fá skýrt svar hvað þetta varðar.