samþjöppun veiðiheimilda.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni stuðninginn við mál sem þó er ekki komið fram þannig að ég vænti þess að það séu nú allir fyrirvarar á því sem hv. þingmaður segir með þá reynslu sem hún hefur af því. Auðvitað skiptir máli núna að læra af öllum þessum tilraunum sem hafa verið gerðar til að skapa meiri sátt í gegnum árin og þær hafa verið allnokkrar. Einhverjar þeirra hafa skilað árangri en ekki nægum. Við settum til að mynda á veiðigjöld á sínum tíma, á árinu 2012, sem var nýbreytni, sem hafa skipt mjög miklu máli. Hv. þingmaður sem þá var í stjórnarandstöðu greiddi þá atkvæði gegn veiðigjöldum. Við höfum komið á strandveiðikerfi o.s.frv., þannig að við höfum stigið ýmis skref sem skipta máli. Það skiptir líka máli að við séum að koma til móts við breytingar í atvinnuháttum og stöndum þess vegna frammi fyrir í allt of ríkum mæli nokkurs konar bútasaumskerfi. Og þess vegna skiptir mjög miklu máli að við náum saman í því að skapa gott umhverfi fyrir fólk sem hefur lífsviðurværi sitt af því að nýta (Forseti hringir.) auðlindir lands og sjávar. Og þar með talið eru þessi sanngirnissjónarmið sem hv. þingmaður nefnir og snúast m.a. um tíma.