152. löggjafarþing — 81. fundur,  30. maí 2022.

lesskilningur ungmenna.

[15:21]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegur forseti. Að geta lesið sér til gagns er grunnfærni í lífinu, lykillinn að námi, þekkingarleit og þekkingarþróun hvers einstaklings. Hver er staða á lestrarkunnáttu barna og ungmenna á Íslandi? Rannsóknir sýna að 39% barna eftir 2. bekk grunnskóla í Reykjavík árið 2019 séu ekki að lesa sér til gagns. Við höfum ekki upplýsingar úr öðrum sveitarfélögum. Rannsóknir sýna að 38% 15 ára unglinga séu ekki að ná grunnfærni í lesskilningi og stærðfræði (UNESCO 2020) og að 34% drengja og 19% stúlkna lesi sér ekki til gagns tíu ára í grunnskóla (PISA-könnun 2018). Rannsóknir sýna að 15 ára börn norskra og danskra innflytjenda samkvæmt PISA-rannsókn 2018 skora hærra í lesskilningi en íslenskir drengir á sama aldri og unglingar á Suðurnesjum, Vesturlandi og Norðurlandi vestra. Rannsóknir sýna að 92,5% innflytjenda eru á rauðu og gulu ljósi hvað varðar íslenskukunnáttu, kunna sem sagt ekki íslensku. Þetta er skýrsla innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar frá 2019. Rannsóknir sýna að 10,8% 19 ára ungmenna voru hvorki í námi eða starfi árið 2020 samkvæmt skýrslu ASÍ. Ástandið er hrikalegt. Þessar tölur tala sínu máli um lestrarkunnáttu barna og ungmenna. Samfélagsumræðan um þetta gríðarlega mikilvæga mál er þrátt fyrir ástandið lítil sem engin. Fræðslumál barna og ungmenna eru á ábyrgð mennta- og barnamálaráðherra innan Stjórnarráðs Íslands samkvæmt forsetaúrskurði, þar á meðal námskrár, námsgögn og ábyrgð á læsi og hvaða lestrarkennsluaðferðir eru kenndar í landinu. Sem æðsti yfirmaður menntamála í landinu í skjóli Alþingis ber hæstv. mennta- og barnamálaráðherra ábyrgð á lestrarkunnáttu barna og ungmenna. Það er enginn annar. (Forseti hringir.)

Spurning mín til hæstv. mennta- og barnamálaráðherra er þessi: Hvað er verið að gera til að bregðast við þessu hrikalega ástandi varðandi læsi barna og ungmenna á Íslandi? (Forseti hringir.) Hvað er hann að gera í dag og hvað ætlar hann að gera í framtíðinni?