152. löggjafarþing — 81. fundur,  30. maí 2022.

lesskilningur ungmenna.

[15:24]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn og tek undir áhyggjur hv. þingmanns af þeirri tölfræði sem hann rakti í sínu máli. Bara til að horfa aðeins á hver staðan er í dag og aðeins til baka, þá lagði forveri minn, hæstv. fyrrverandi mennta- og menningarmálaráðherra, Lilja Alfreðsdóttir, mikla áherslu á þessi mál þegar kom að aukinni útgáfu barnabóka, þegar kom að tilraunaverkefnum eins og Kveikjum neistann í Vestmannaeyjum, sem ég veit að hv. þingmaður þekkir, og fleiri verkefnum sem lúta að íslensku máli, sem lúta að lestrarkunnáttu og öðru er varðar skólakerfið. Við erum að halda þeim verkefnum áfram af fullum þunga og það er spennandi til að mynda að fylgjast með verkefninu Kveikjum neistann í Vestmannaeyjum. Síðan hefur það líka gerst, og byrjaði að gerast held ég af einhverjum krafti síðustu fjögur ár, að það er aukin aðkoma ríkisins að þjónustu við skólakerfið og samtal ríkisins við sveitarfélögin og við kennarasamfélagið um hvernig þurfi að standa betur við bakið á grunnskólakerfinu. Það hefur verið allt of lengi við lýði sú stefna að ríkið eigi kannski ekkert allt of mikið að koma að þessu. Við erum í rauninni að fylgja því eftir núna og hyggjumst fara í það og erum í samtali um það, bæði við Kennarasambandið og Samband íslenskra sveitarfélaga, hvernig við getum í auknum mæli aðstoðað skólakerfið miðlægt með skólaþjónustu til að styðja við nemendur en líka kennara og starfsfólk í skólasamfélaginu. Það er því kannski ekki hægt að segja að það sé einhver ein patentlausn sem við séum að boða hér inn í framtíðina heldur bara jöfn og þétt samvinna á milli ríkis, sveitarfélaga og skólakerfis sem miðar að því að byggja áfram á þeim grunni sem hefur verð lagður síðustu ár. Þetta er gríðarlega mikilvægt hagsmunamál og ég tek undir með hv. þingmanni hvað það snertir.