lesskilningur ungmenna.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Hann sagði m.a. að ríkið hafi ekki komið allt of mikið að þessum málum. Ég held að það sé einmitt vandamálið. Það er einmitt vandamálið að ríkið, Alþingi Íslendinga í þingræðisríkinu og ráðherra hafi ekki stjórnað þessum málum nægjanlega vel. Ráðherra hefur frumkvæðisskyldu í þessu máli og það er alveg skýrt að þegar þessar tölur tala sínu máli, þ.e. að ástandið sé hrikalegt, þá er það á ábyrgð ráðherrans, það er enginn annar sem ber ábyrgð á þessu. Það er enginn annar í samfélaginu sem ber ábyrgð á þessu. Ábyrgð ráðherrans á menntakerfinu og menntun barna er hjá honum samkvæmt umboði frá Alþingi. Það er þannig sem það er. Ég get tekið dæmi hvernig önnur ríki hafa brugðist við. Það var svokölluð Rose-skýrsla frá 2006 sem kom út í Bretlandi og í framhaldi af því setti breska þingið lög um með hvaða aðferð ætti að kenna börnum að lesa, hvaða lestrarkennsluaðferð ætti að nota. Sama var gert í Frakklandi á sínum tíma. Þetta eru tvær helstu menningarþjóðir Evrópu. Í Vestmannaeyjum er í gangi verkefni, Kveikjum neistann, en þar er verið að beita alþjóðlega viðurkenndri lestrarkennsluaðferð sem á að fara beint í námskrá. Spurningin er þessi: Er ráðherrann tilbúinn að setja það í námskrána þannig að það verði ein viðurkennd lestrarkennsluaðferð á landinu, sem er ekki í dag? Þetta virðist vera heimatilbúið kukl sem er í gangi núna en ekki viðurkenndar aðferðir .