lesskilningur ungmenna.
Virðulegi forseti. Við getum verið sammála um það, ég og hv. þingmaður, að ég held að ríkið hafi almennt ekki verið að skipta sér — eða kannski ætti ekki að nota orðin skipta sér, heldur hefur ekki verið nægilega mikil samvinna á milli ríkis og sveitarfélaga þegar kemur að grunnskólamálum og raunar leikskólamálum líka. Það sem ég kemst næst er að þessi aldarfjórðungur sem liðinn er síðan skólinn var fluttur yfir — að fyrstu árin þar á eftir var bara almennt sú stemning að við ættum ekki að skipta okkur mikið af þessu, ríkisvaldið. Ég held að það sé talsvert kallað eftir því núna og það er það sem við erum að vinna að. Síðan vil ég segja að þegar kemur að lögum um aðferðir við lestrarkennslu þá er verið að keyra tilraunaverkefni í Vestmannaeyjum sem ég held að sé mjög skynsamlegt. Það eru hins vegar skiptar skoðanir um hvort þessi aðferð eða önnur sé betri. Ég ætla ekki að standa hér í ræðustól Alþingis og þykjast vera sérfræðingur um þau mál. Hins vegar viljum við fylgjast með þessu tilraunaverkefni. Það er spennandi og það var sett af stað í samstarfi ríkis, viðkomandi sveitarfélags og (Forseti hringir.) sérfræðinga, bæði innlendra og erlendra, og vísindasamfélags. (Forseti hringir.) Það verður spennandi að fylgja því eftir og sjá hvaða ákvarðanir verða teknar í framhaldi af því.