frumvarp um útlendinga.
Frú forseti. Þegar hæstv. forsætisráðherra kynnti núverandi ríkisstjórn á blaðamannafundi á Kjarvalsstöðum sagði hún að uppstokkun ráðuneytanna sýndi einbeittan vilja til að láta Stjórnarráðið vinna saman sem samhenta heild. Það gaf mér vonir um að hin mörgu ólíku sjónarmið sem fyrirfinnast á stjórnarheimilinu fengju aukið vægi í ríkisstjórninni í stað þess að ráðherrar yrðu einvaldar í sínum ráðuneytum eins og hefur tíðkast svo lengi. Það væri í anda þeirra samræðu- og sáttastjórnmála sem ríkisstjórnin segist vilja stunda. Annað hefur hins vegar komið á daginn, ekki síst þegar kemur að útlendingamálum, og við höfum fengið að fylgjast með tveimur ráðherrum takast opinberlega á í fjölmiðlum þar sem ráðherrar ýmist ljúga eða eru sakaðir um að ljúga. Hæstv. forsætisráðherra hefur talað um mikilvægi regluverks og þess að fara í heildstæða stefnumótun í þessum málaflokki og lætur það hljóma eins og það hafi engin slík stefnumótun farið fram. Þvert á móti hefur stefnumótun ríkisstjórnarinnar í útlendingamálum birst fjórum sinnum í frumvarpi sem blessunarlega hefur verið stöðvað þrisvar sinnum og verður vonandi stöðvað í það fjórða en umrætt frumvarp hefur verið rætt í 13 klukkustundir og 15 mínútur í þingsal frá því að það var lagt fram árið 2020. Samþykkti hæstv. forsætisráðherra þetta frumvarp ekki fjórum sinnum út úr ríkisstjórn? Er þetta frumvarp ekki einmitt stefnumótunin sem forsætisráðherra segist kalla eftir? Ég fæ nefnilega ekki betur séð en að draumastefnumótun hæstv. forsætisráðherra í útlendingamálum liggi fyrir. Annars hefði ríkisstjórnin sem hún leiðir ekki samþykkt þetta frumvarp fjórum sinnum. Stendur hæstv. forsætisráðherra við stefnu eigin ríkisstjórnar í útlendingamálum og ætlar hún að láta hæstv. dómsmálaráðherra einum eftir að sjá um þessi mál án þess að hún og aðrir ráðherrar hennar flokks skipti sér af?