152. löggjafarþing — 81. fundur,  30. maí 2022.

frumvarp um útlendinga.

[15:31]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Frú forseti. Hér hefur áður verið spurt hvað átt sé við þegar ég kalla eftir heildarstefnumótun um málefni útlendinga og ég vil þakka hv. þingmanni fyrir að setja þau mál á dagskrá hér. Að mínu viti var það nefnilega gæfuspor þegar Alþingi Íslendinga samþykkti lög um útlendinga 2016 sem tóku svo gildi 2017. Þau lög voru samþykkt í ótrúlega breiðri samstöðu, ekki fullkominni samstöðu en ótrúlega breiðri samstöðu. Ég man að þá var rætt um hversu mikið gæfuspor þetta væri, að við værum ekki að stefna þessum málum í skotgrafir eins og við höfum séð hjá öðrum þjóðum. Síðan þá hefur hins vegar komið á daginn að við erum ekki á eitt sátt um framkvæmd þeirra laga og túlkun þeirra laga. Mín skoðun er sú að lögin sjálf standist enn vel tímans tönn. Mín skoðun er sú að þær breytingar sem gerðar hafa verið, til að mynda hvað varðar tímafresti, sérstaklega hvað varðar málefni barna, og þeir tímafrestir styttir þannig að börn og fjölskyldur þeirra njóti forgangs þegar kemur að því að taka mál þeirra til meðferðar, hafi verið skynsamlegar ráðstafanir. En mín skoðun er sú að þessari löggjöf hefði átt að fylgja eftir með ákveðnu samráði um sýn og stefnumótun í málefnum útlendinga. Það kann vel að vera að hv. þingmenn séu ósammála mér um það, en ég leyfi mér að benda á þá staðreynd að annars vegar tökum við á móti töluvert mörgu fólki á flótta sem fær hér vernd. Ég fór með tölur áðan sem ég ætla að gera þann fyrirvara við að þær eru líklega frá upphafi árs 2017 en ekki frá upphafi síðasta kjörtímabils, bara svo öllu sé til haga haldið í þeim efnum. Við erum líka með mikinn fjölda útlendinga sem ekki er fólk á flótta, fólk sem kemur hingað og vinnur. Mér finnst á það skorta að við sem stjórnkerfi — og ég get tekið mína ábyrgð á því sem forsætisráðherra — vinnum nægjanlega vel saman í því að tryggja lífskjör og lífsgæði allra þeirra sem hingað koma, (Forseti hringir.) hvort sem er til að leita ásjár í okkar verndarkerfi eða til að leita sér að tækifærum. (Forseti hringir.) Það er sú stefnumótun sem mig langar að sjá fara fram í þverpólitísku samráði.