152. löggjafarþing — 81. fundur,  30. maí 2022.

frumvarp um útlendinga.

[15:35]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Frú forseti. Ég vil bara segja það að það eru þrír flokkar í ríkisstjórninni og þeir eru ekki með sömu stefnu í útlendingamálum og að sjálfsögðu stend ég með stefnu minnar hreyfingar í útlendingamálum. Hins vegar er það hlutverk allra þeirra sem sitja við ríkisstjórnarborð að finna lausnir, líka þegar flokkarnir við ríkisstjórnarborðið eru ekki fullkomlega sammála. Það er bara eðli þess að sitja í ríkisstjórn, að ég tali nú ekki um að leiða ríkisstjórn. En af því að hv. þingmaður spyr um stefnumótun þá vil ég bara ljúka því sem ég sagði hér um það. Ég tel að það sé mjög mikilvægt að við tökum til umræðu, eins og ég nefndi áðan í svari við fyrirspurn hv. þm. Loga Einarssonar, m.a. samspil atvinnu- og dvalarleyfa. Þar þurfa tvö ráðuneyti að vinna saman. Hv. þingmaður nefndi samstarf ráðuneyta í fyrri spurningu sinni. Það getur oft reynst gríðarlegum erfiðleikum háð að ólíkar einingar stjórnkerfisins vinni saman en þessi stóri málaflokkur á það svo sannarlega skilið að ekki bara þessi tvö ráðuneyti heldur öll ráðuneyti, ég nefni hér menntamálaráðuneyti og önnur ráðuneyti, komi saman að því að tryggja heildstæða stefnu í málefnum útlendinga sem við sem samfélag höfum ekki mótað. Ég get tekið það á mig að sú heildstæða stefna (Forseti hringir.) hafi ekki verið mótuð á síðasta kjörtímabili, það hefði kannski betur verið gert. En verkefnið núna (Forseti hringir.) er að ljúka þeirri stefnumótun þannig að við getum líka sannarlega verið stolt af því sem við erum að gera, (Forseti hringir.) sem um margt er gott. En í sumu er tvímælalaust úrbóta þörf.