152. löggjafarþing — 81. fundur,  30. maí 2022.

heilsugæsla á Akureyri.

[15:44]
Horfa

Berglind Ósk Guðmundsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Samkvæmt ákvörðun þáverandi heilbrigðisráðherra frá 7. nóvember 2019 verða opnaðar tvær nýjar starfsstöðvar heilsugæslu á Akureyri. Það er löngu tímabær uppbygging sem hefur dregist um of. Heilsugæslan á Akureyri sinnir vel yfir 20.000 manns sem deila einni heilsugæslu í úr sér gengnu húsnæði. Það er því mikið fagnaðarefni að loks verði tvær heilsugæslustöðvar á Akureyri. Önnur verður í nýbyggingu á tjaldstæðisreitnum við Þórunnarstræti og hin í endurgerðu húsnæði í Sunnuhlíð. En ég vil þó kannski bíða með fagnaðarlætin á meðan framkvæmdir hafa ekki enn farið af stað á nýbyggingunni. Oft á tíðum hefur reynst erfitt að fá sérfræðinga, hvort sem er á sviði læknisfræði eða annarra sérfræðigreina í heilbrigðisgeiranum, til starfa á landsbyggðinni. Leiða má líkur að því að auknir valmöguleikar hvað varðar rekstrarform í heilbrigðisþjónustu hafi í för með sér að auðveldara verði að fá heimilislækna til starfa á Akureyri og því er mikilvægt að gera starfsumhverfi þeirra eins fjölbreytt og aðlaðandi og unnt er. Nú hefur einkarekstur heilsugæslustöðva gefið góða raun og mælist ánægja og traust notenda til þeirra meira en heilsugæslustöðva sem reknar eru af hinu opinbera. Hins vegar eru allar einkareknar heilsugæslustöðvar landsins staðsettar á höfuðborgarsvæðinu og hefur landsbyggðin setið hjá í þessari þróun. Flokkur hæstv. heilbrigðisráðherra hefur talað fyrir svokallaðri blandaðri leið í veitingu heilbrigðisþjónustu og er kjörið tækifæri til að fara slíka leið, ekki bara til að fá fleiri sérfræðinga til starfa á Norðurlandi heldur einnig til að bæta þjónustu og valfrelsi notenda heilbrigðisþjónustunnar.

Og þá er bara komið að fyrirspurninni: Hefur hæstv. heilbrigðisráðherra í hyggju að bjóða út rekstur annarrar heilsugæslustöðvarinnar sem til stendur að opni á Akureyri?