heilsugæsla á Akureyri.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Berglindi Ósk Guðmundsdóttur fyrir að taka þetta mál á dagskrá varðandi heilsugæsluna á Akureyri. Ég vil byrja á því að taka undir með hv. þingmanni og fagna því að þetta er þó komið í þennan farveg. Það er alveg hárrétt sem hv. þingmaður segir að heilsugæslan á Akureyri, þar sem hún hefur verið til húsa í Hafnarstræti, er komin til ára sinna og full þörf á því að gera bragarbót þar á. Það er búið að auglýsa eftir húsnæði undir heilsugæslustöð og síðan á að byggja nýja heilsugæslu fyrir Akureyri suður, eins og skiptingin er. Þar er í deiliskipulaginu heimilt að reisa tveggja hæða hús. Sú uppbygging er fjármögnuð. Það er reyndar uppi ágreiningur um hvort setja eigi bílastæði undir húsið sem var ekki ráðgert þegar frumathugun átti sér stað, en við leysum það. Það þarf frekara samtal sem er búið að vera á milli bæjarins, Framkvæmdasýslu ríkiseigna og ráðuneytis.
Varðandi það hvort þetta verði einkarekin heilsugæsla eður ei þá kemur það vel til greina. Þetta er bara á því stigi að það hefur ekki verið tekin nein ákvörðun um það enn þá. Af því að hv. þingmaður kom inn á mönnunarvandann þá er þetta tvíþætt mál. Það eru alltaf áhyggjur þeirra sem eru að reka heilsugæslu fyrir að missa frá sér mannskap. Við erum í raun og veru alltaf í samkeppni um sama takmarkaða mannauðinn. En það kann vel að vera að það sé skynsamlegt módel og geti hentað vel (Forseti hringir.) á Akureyri. Ég útiloka það ekki. Það samtal er bara að hefjast.