heilsugæsla á Akureyri.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir svarið. Ég held einmitt að það séu mikil tækifæri fólgin í því að fá aðra aðila að borðinu og fara að skoða það. Ég vil hvetja heilbrigðisráðherra til að fela Sjúkratryggingum að bjóða út rekstur heilsugæslu á Akureyri. Eins og ég sagði í minni fyrri ræðu hefur landsbyggðin farið á mis við þá þróun sem orðið hefur á höfuðborgarsvæðinu. Það eru fleiri svæði sem heilbrigðisráðherra verður að líta til, ég nefni sérstaklega Suðurnesin þar sem skýrt hefur verið kallað eftir bættri þjónustu og fjölbreyttara rekstrarformi. Þetta er sem sagt verkefni sem vert er að skoða einmitt fyrir mannauðinn okkar í heilbrigðisgeiranum á landsbyggðinni. Þar þarf ekki að bítast um starfsfólk ef þar er notalegt og gott starfsumhverfi.
Svo ég ítreki spurningu mína: Mun heilbrigðisráðherra beita sér fyrir fjölbreyttari rekstrarformum á veitingu heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni í heild?