hækkun lágmarksiðgjalds til lífeyrissjóðs.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á nokkrum lögum í tengslum við þátt lífeyrismála í stuðningi stjórnvalda við gerð lífskjarasamninga aðila vinnumarkaðarins frá í apríl 2019. Frumvarp með sama markmiði var fyrst lagt fram á 151. löggjafarþingi en vegna ólíkra sjónarmiða sem komu fram í umsögnum til þingsins vísaði efnahags- og viðskiptanefnd málinu að nýju til ríkisstjórnarinnar til frekari rýni og samráðs við hagaðila um breytingartillögur frumvarpsins. Það frumvarp sem nú er lagt fram er afrakstur endurskoðunar á fyrra frumvarpi þar sem leitast hefur verið við að koma til móts við ólík sjónarmið. Efni þessa frumvarps er því að nokkru leyti ólíkt því sem lagt var fram í fyrra þó markmiðin sem stefnt er að séu enn þau sömu.
Ég ætla að leyfa mér, með vísan til þessarar forsögu, að fara sérstaklega yfir þær tillögur í þessu máli sem fela í sér breytingar frá því hvernig málið var áður kynnt hér í þinginu. Það liggur í hlutarins eðli að ég kem inn á það við einstakar breytingartillögur. En ef við ræðum um þetta mál bara út frá breytingunum sem frumvarpið felur í sér þá eru það fyrst breytingar á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.
Í fyrsta lagi er hér lagt til að lágmarksiðgjald til lífeyrissjóðs verði hækkað úr 12% í 15,5% af iðgjaldsstofni líkt og samið hefur verið um í langflestum kjarasamningum.
Í öðru lagi er lagt til að meðaltal réttindaöflunar til mánaðarlegs ellilífeyris hækki úr 1,4% á ári í 1,8% á ári af þeim iðgjaldsstofni sem greitt er af yfir 40 ára inngreiðslutíma.
Í þriðja lagi er lögð til heimild til handa lífeyrissjóði til að kveða á um í samþykktum sínum að sjóðfélagi geti ráðstafað í heild eða að hluta hækkuninni á lágmarksiðgjaldinu til tilgreindrar séreignar. Nýti sjóðfélagi sér þessa heimild lækkar meðaltal réttindaöflunar úr 1,8% á ári í allt að 1,4% á ári. Úttekt á tilgreindri séreign getur fyrst hafist þegar sjóðfélagi hefur náð a.m.k. 62 ára aldri. Útgreiðsla skal dreifast á jafnar mánaðarlegar greiðslur frá því að sjóðfélagi óskar eftir að fá tilgreinda séreign greidda út og þar til hann nær 67 ára aldri. Við andlát sjóðfélaga fellur séreignin til erfingja.
Í fjórða lagi er lagt til að lífeyrissjóði sem hefur ákveðið lágmark tryggingaverndar þannig að iðgjaldi sé varið að hluta til öflunar lífeyrisréttinda í séreign og að hluta í sameign skv. 3. mgr. 4. gr. laganna, verði heimilt að halda óbreyttu fyrirkomulagi. Þannig tryggi sjóðurinn sjóðfélaga vernd sem nemur að lágmarki 1,4% á ári af þeim iðgjaldsstofni sem greitt er af, líkt og við á um ráðstöfun til tilgreindrar séreignar.
Í fimmta lagi er lagt til að lífeyrissjóðum og vörsluaðilum verði gert skylt að senda Skattinum sundurliðun á ráðstöfun á lífeyrisiðgjaldi hvers einstaklings í lok hvers árs. Þessar upplýsingar munu varpa ljósi á það hvernig lífeyrisiðgjald skiptist þar sem heimilt er samkvæmt lögum að ráðstafa iðgjaldinu þannig að hluta þess sé varið til öflunar lífeyrisréttinda í sameign og hluta til öflunar lífeyrisréttinda í séreign. Þá er í frumvarpinu ákvæði um að lífeyrissjóðum og vörsluaðilum verði gert skylt að tilgreina við útborgun hvaða hluti séreignar myndast af iðgjaldsstofni og hvaða hluti séreignar hefur myndast á grundvelli iðgjalds til viðbótarlífeyrissparnaðar.
Loks er lagt til að á meðan í kjarasamningi er enn kveðið á um 12% iðgjald til lífeyrissjóðs sé heimilt að miða lágmarksiðgjaldið við 12%, þar til aðilar hafi náð saman um breytta hlutfallstölu í viðkomandi kjarasamningi. Eftir það beri að miða lágmarksiðgjald við 15,5%.
Þá ætla ég að víkja að breytingum á lögum um stuðning til kaupa á fyrstu íbúð. Tillögur að breytingum á lögunum snúa einna helst að skattfrjálsri heimild einstaklinga til að nýta tilgreinda séreign til kaupa á fyrsta íbúðarhúsnæði. Hún kæmi til viðbótar við ráðstöfun á viðbótariðgjaldi til séreignarsparnaðar enda nái einstaklingur ekki að nýta heimildina að fullu með viðbótariðgjaldinu. Einnig er lagt til að einstaklingum sem ekki hafa verið skráðir eigendur að íbúðarhúsnæði í fimm ár, fram að þeim tíma er umsókn um ráðstöfun berst Skattinum, verði heimilað að nýta sér sömu séreignarsparnaðarúrræði og kaupendum fyrstu íbúðar.
Helstu breytingar á lögum um almannatryggingar og lögum um málefni aldraðra eru þær að kveðið er á um breytt samspil lífeyrisgreiðslna frá lífeyrissjóðum og greiðslna úr almannatryggingakerfinu þannig að allur lífeyrissparnaður, annar en viðbótarlífeyrisparnaður, kemur til lækkunar við ákvörðun ellilífeyris samkvæmt lögum um almannatryggingar. Að óbreyttum lögum yrði viðhaldið því ójafnræði sem hefur verið til staðar frá árinu 2008 á milli sjóðfélaga.
Ég tel þessa síðastnefndu breytingu mikið réttlætismál sem brýnt er að fái umræðu í þinginu og nái fram að ganga. Þetta hefur einfaldlega með það að gera að það sé til einhver tegund sparnaðar sem ekki kemur til frádráttar við ákvörðun á réttindum í almannatryggingakerfinu, annað heldur en það sem við höfum kallað viðbótarlífeyrissparnað. Það er talið að útgreiðslur vegna þess, eins og rakið er í greinargerð með frumvarpinu, gætu verið í kringum 1 milljarð kr. á ári. Þessu væri þá breytt til framtíðar og ég tel að þetta sé mikilvægt og á allan hátt mikið sanngirnismál.
Þá er að finna í frumvarpinu sömuleiðis tillögur að afleiddum breytingum á lögum um tekjuskatt í tengslum við skattfrelsi á ráðstöfun tilgreindrar séreignar við kaup á fyrstu íbúð og það ætti að skýra sig sjálft. Ég sagði áðan að ég myndi fara aðeins yfir breytingarnar frá því að frumvarpið lá hér áður fyrir og það er kannski sérstaklega vert að nefna að við erum hérna að fjalla um að í lög fari heimildarákvæði vegna tilgreindu séreignarinnar. Það er breyting. Það er nokkuð veigamikil breyting sem skilur eftir ákveðið frelsi fyrir þá sem í hlut eiga til að taka þetta upp í sínum samþykktum.
Í öðru lagi myndi ég vilja nefna sérstaklega að þeim lífeyrissjóðum sem hafa ákveðið lágmark tryggingaverndar þannig að iðgjaldi sé varið að hluta til öflunar réttinda í séreign, eins og ég nefndi áðan, og svo að hluta í sameign, verður heimilt áfram að halda óbreyttu fyrirkomulagi. Þetta er breyting sem verður eftir umsagnarferli og frekara samráð og leiðir kannski af því að megintilgangurinn með þessu máli var ekki að breyta slíku fyrirkomulagi. Það var ekki megintilgangurinn. Megintilgangurinn var að koma á fót lagabreytingu sem opnaði fyrir tilgreindu séreignina og í þessu frumvarpi erum við síðan að gefa tilgreindu séreigninni ákveðna réttarstöðu, ekki síst út af íbúðarkaupum. Það var ákveðið meginatriði í þessu. En þegar við fórum að smíða frumvarpið eftir að hafa haft samráð við aðila komu í ljós alls konar snertifletir við önnur atriði í lífeyriskerfinu hjá okkur sem kallað var eftir að tækju breytingum en voru í sjálfu sér, eins og ég horfði á það frá upphafi, ekki hluti af grunnhugsuninni frá upphafi. Öll þessi vinna hefur kannski bara varpað ljósi á það hversu brýnt er orðið að við förum í þessa heildarendurskoðun sem má segja að hafi staðið yfir núna í á annan áratug. Það var hér sett af stað sameiginlegt verkefni til að fara í heildarúttekt á lífeyrissjóðakerfinu og fæddust tillögur úr því starfi sem við höfum að hluta til tekið inn í lögin. En síðan eru liðin u.þ.b. átta ár, nei, ætli sé ekki réttara að segja sex ár, og enn standa fjölmörg atriði út af sem við þurfum aftur að fara að setjast yfir saman. Þetta eru grundvallarþættir sem er mikilvægt að við gefum góðan tíma til að skoða. Það eru t.d. ólík sjónarmið uppi um það hvort við séum með viðbótarlífeyrissparnaðinum farin að nálgast það að vera með nánast oftryggingu í kerfinu hjá okkur og ef svo er að fólk sem er með fullan vinnualdur á markaði og er að leggja til hliðar í séreignarsparnaðarúrræðið, þetta viðbótarlífeyrissparnaðarúrræði sem ég er að vísa til hér, er komið með mögulega 100% af meðalævitekjum sínum í lífeyrisréttindi, þá finnst mér það verðskulda alvöruumræðu um það hvort við megum ekki stórauka frelsið til að ráða því með hvaða hætti slíkum sparnaði er komið fyrir. Það eru svona grundvallaratriði sem mér finnst þurfi að fara vel yfir.
Við höfum smám saman verið að gera breytingar á undanförnum árum sem ég ætla ekki að rekja hér, en ég myndi samt vilja minnast á afnám bakábyrgðar ríkissjóðs. Þetta frumvarp hér er hluti af þeirri vegferð í þeim skilningi að hér erum við að reyna að jafna lífeyrisréttindastöðuna á milli markaða. Undir lok síðasta árs voru sömuleiðis gerðar breytingar út af breytingum sem hafa orðið á lífslíkum og við höfum verið að horfast í augu við ófjármagnaðar lífeyrisskuldbindingar, gerum betur grein fyrir þeim núna í opinberum reikningum. Við höfum greitt töluvert mikið inn á ófjármagnaðar lífeyrisskuldbindingar og gjörbreytt stöðunni, sérstaklega gagnvart A-deildinni og B-deildin er svo sem í farvegi. Við höfum verið að verja 10 milljörðum á ári inn í ófjármagnaðar skuldbindingar í B-deildinni vegna þess að við viljum gera sem minnst af því að velta því vandamáli áfram á herðar framtíðarkynslóða.
Eins og maður kannski sér strax og farið er út fyrir efni frumvarpsins er þetta málasvið efni í svo stóra umræðu og mikilvæga að ég held ég láti staðar numið hér. Ég ætla þó að láta þess getið að þetta kerfi okkar í heildina tekið er býsna sterkt og var nýlega sett í fyrsta sæti í alþjóðlegri vísitölumælingu milli ólíkra lífeyriskerfa sem hlýtur að hafa talist vera mjög góð niðurstaða fyrir samanburð íslenska lífeyrissjóðakerfisins við önnur kerfi annars staðar. Við höfum svo sem ekkert efni á því að bíða með að gera umbætur á kerfinu vegna þess að þjóðin er að eldast og það mun smám saman reyna meira og meira á styrk kerfisins. Við erum síðan með önnur frumvörp í þinginu eins og varðandi fjárfestingarheimildir sem var lagt fyrir þetta þing og þar er líka horft til þess að styrkja kerfið til framtíðar litið.
En við erum hérna með nokkrar breytingar frá fyrra frumvarpi sem ég tel að séu réttlætanlegar og nauðsynlegar. Ég er þá sérstaklega að vísa til þess að þegar um var að ræða atriði sem voru í sjálfu sér ekki hluti af grunnhugmyndinni um tilgreindu séreignina þá hef ég ákveðið að gera breytingar í átt til þess að láta slík atriði eiga sig.
Annað dæmi sem ég hefði getað nefnt hér er það sem ég rakti áðan um 12% iðgjaldið. Það var aldrei hugmyndin með tilgreindu séreigninni og samningunum sem við köllum lífskjarasamningana að ná utan um það atriði sérstaklega. Þetta eru sjómennirnir, þeir sem taka réttindi sín úr samningum við útgerðina og gilda að nokkru leyti svona sérstök sjónarmið varðandi hlutaskiptakerfið allt og réttindaávinnslu í því vinnuréttarsambandi. Þó að það megi svo sem alveg segja: Heyrðu, af hverju var ekki bara ferðin notuð til þess að klára það mál líka? þá var það bara aldrei hugmyndin á bak við tilgreindu séreignina eins og um hana var samið að fara að afgreiða atriði eins og þetta. Þess vegna höldum við því inni, eins og var reyndar í eldra frumvarpi, að það sé undir samningsaðilum komið að gera þessa breytingu og færi þeir lágmarksiðgjaldið upp í 15,5% þá skuli það frá og með þeim tíma gilda. Það er erfitt að sjá hvernig við hefðum getað í sjálfu sér fært svona atvinnutengd réttindi upp í 15,5%, bara með einu pennastriki í lögum, án þess að það teldist vera bara hrein launahækkun og þyrfti að taka tillit til hennar við frekari kjarasamningagerð þeirra aðila.
Ég læt staðar numið við að rekja skýringar á breytingum og setja þetta mál í samhengi við stærri grænbókarvinnu sem ég tel að sé óumflýjanlegt að fara núna að setja af stað. Eins og ég hef hér rakið þá má öllum vera ljóst, m.a. af fyrri tilraunum til að festa þetta samningsatriði um tilgreindu séreignina í lög, að þetta er mál þar sem eru skiptar skoðanir. Það eru t.d. skiptar skoðanir milli opinbera hlutans og almenna og það náðist ekki sátt um efni þessa frumvarps á sínum tíma. Ég hef verið að vinna í málinu í millitíðinni og við höfum lagt í töluverða vinnu við að greina hvert og eitt einasta atriði og málið er núna komið aftur fram og hefur tekið breytingum frá því að það lá frammi í samráðsgátt. Þannig að þetta frumvarp er afrakstur mikils samráðs og við höfum í þrígang kynnt drög að þessu frumvarpi. Ég vil meina að öll þessi vinna hafi leitt til þess að við höfum náð að koma til móts við margar ábendingar. Ég er alveg viss um að það verða enn þá athugasemdir við málið en ég hef kosið það sjónarhorn eða valið þá nálgun varðandi þær athugasemdir sem ég enn heyri, að spyrja einfaldlega þessarar spurningar: Er atriðið sem er verið að gagnrýna hluti af því sem við vorum að tala um í lífskjarasamningaviðræðunum eða er um að ræða einhvern óskalista um aðrar breytingar sem tengdust því í sjálfu sér ekki neitt? Eigum við þá ekki bara að taka slík atriði inn í heildarendurskoðunina og klára þetta með tilgreindu séreignina?
Virðulegi forseti. Ég legg til að þessu sögðu að málinu verði vísað til efnahags- og viðskiptanefndar og svo til 2. umr. að lokinni þessari umræðu.