152. löggjafarþing — 81. fundur,  30. maí 2022.

hækkun lágmarksiðgjalds til lífeyrissjóðs.

690. mál
[16:41]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir að setja þetta í þetta samhengi. Í sjálfu sér get ég ekki svarað þessu öðruvísi en að þetta er bara matsatriði sem þarf að fara yfir og sjálfsagt að ræða nákvæmlega hvernig við náum best tilganginum með ákvæðinu.