152. löggjafarþing — 81. fundur,  30. maí 2022.

hækkun lágmarksiðgjalds til lífeyrissjóðs.

690. mál
[17:29]
Horfa

Kristrún Frostadóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir spurninguna frá hv. þingmanni. Þetta er auðvitað þannig. Við erum í dag að borga þó nokkuð marga milljarða á ári inn í B-hluta LSR til að mynda af því að of miklu var lofað fram í tímann. Og núna erum við að reyna að fullfjármagna hlutinn og fólk að borga upp í topp. Það sem er kannski meira áhyggjuefni í þessu samhengi er að þessi skuld er víða annars staðar, hún er náttúrlega líka í innviðum og víða í velferðarkerfunum okkar. Ég held að margir hljóti að vera hugsi yfir þeirri stöðu sem nú er komin upp, að við horfum upp á það, sem sitjum í hv. fjárlaganefnd, að stórkostleg stjórnarsáttmálaloforð, sem eiga að hafa gjörbreytandi áhrif á velferðarkerfin okkar og innviði, eru vanfjármögnuð. Við erum mögulega að stefna í sömu stöðu með ungar kynslóðir í dag, að þrátt fyrir að fjárhagslega í dag, eins og það stendur á bókunum, virðist ekki vera vandamál með framtíðarkynslóðir, þá erum við byrjuð að safna skuldum, þannig að þetta endurtekur sig.