hækkun lágmarksiðgjalds til lífeyrissjóðs.
Virðulegi forseti. Ég þakka spurninguna. Mér finnst ekkert athugavert við að það séu til einhvers konar úrræði sem hjálpa fólki við að eignast húsnæði ef þau eru þá bara fókuseruð á hópa sem þurfa virkilega á því að halda. Það er ekkert athugavert við það. Við eigum ekki að stefna að því að allir búi í leiguhúsnæði þó að að mörgu leyti snúist — hvort þú viljir búa í leiguhúsnæði eða séreign á Íslandi, bara um hvort þú hafir húsnæðisöryggi. Það þarf auðvitað að breyta stöðunni á húsnæðismarkaði hvað það varðar. Það þarf að skoða betur þetta úrræði varðandi fyrstu kaup, að við tryggjum að þetta renni ekki hlutfallslega til tekjuhæstu tíu prósentanna eins og það gerir í dag.
En svo þarf bara að ráðast í alvörubreytingar á íslenskum húsnæðismarkaði sem snúa að því að hanna það þannig að þetta sé velferðarmiðaður markaður. Þetta snýr að regluverki varðandi leigu, umræðu um leiguþak eða leigubremsu eða þess háttar og það þarf að færa þá umræðu inn í framtíðina, ekki vera að vitna í einhverja hagfræðinga sem sögðu eitthvað árið 1960, í fyrsta lagi. Í öðru lagi þurfum við að skoða aðkomu hins opinbera að uppbyggingu óhagnaðardrifins húsnæðis í auknum mæli, þannig að það er margt hægt að gera.