152. löggjafarþing — 81. fundur,  30. maí 2022.

hækkun lágmarksiðgjalds til lífeyrissjóðs.

690. mál
[17:37]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágæta ræðu. Hún fór ágætlega yfir að það verður að auka vægi séreignarsparnaðar í lífeyrissjóðakerfinu. Það er stóra myndin. Mig langar að spyrja. Það er komið hugtakið tilgreind séreign. Ef maður horfir á eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar þá er þetta klárlega takmörkun á eign einstaklings. Ég sé hérna ákvæði 3. gr. frumvarpsins um að sjóðfélaga sé heimilt að ráðstafa tilgreindri séreign til annars vörsluaðila og svo segir að við 2. mgr. bætist að þá sé lífeyrissjóði heimilt að taka gjald af sjóðfélaga sem hlýst af kostnaði við flutning á tilgreindri séreign til annars aðila. Hérna er verið að skylda sjóðfélaga að greiða til lífeyrissjóðs þegar um er að ræða tilgreinda séreign. Væri ekki réttara þegar sjóðfélagi er að greiða svona tilgreinda séreign eins og hér að hann fái bara velja það í upphafi hvert hann greiðir þessa séreign, hvaða vörsluaðila hann velur til að safna peningum sínum í séreign, ekki vera að binda hann við lífeyrissjóð? Svo er hann rukkaður um gjald fyrir það og það er ákveðinn þröskuldur fyrir því að hann geti flutt á milli. Það er klárlega takmörkun á ráðstöfunarrétti hans. Væri ekki rétt að lífeyrissjóðirnir myndu bara einbeita sér að hinni samfélagslegu tryggingu á meðan þeir væru ekki að ávaxta séreign, ekki að ávaxta tilgreinda séreign, og þá myndi sjóðfélaginn eða launþeginn hafa ákvarðanavald um það hvaða eignastýringu hann velur til þess að ávaxta skyldusparnað sinn? Þetta er líka ótrúlega hár aldur. Það er heimilt að hefja útgreiðslu tilgreindrar séreignar þegar sjóðfélagi hefur náð a.m.k. (Forseti hringir.) 62 ára aldri. Spurningin er varðandi þennan skyldusparnað sem er hér verið að kveða á um (Forseti hringir.) hvort það sé ekki of mikil takmörkun og líka (Forseti hringir.) hvort þetta eigi endilega að vera í lífeyrissjóði til að byrja með.