hækkun lágmarksiðgjalds til lífeyrissjóðs.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Þetta er ekki frekar lagatæknilegt atriði en eitthvað annað. Það er bara ákveðinn skyldusparnaður í gangi sem er séreign og þá tel ég að lífeyrisþeginn eigi að hafa frelsi til að ákveða hvar hann ráðstafar þessari tilgreindu séreign og séreign sinni. Þannig er það. Mér finnst þetta lífeyrissjóðakerfi vera mjög mikið á forsendum aðila vinnumarkaðarins og á forsendum lífeyrissjóðanna, ekki á forsendum einstaklinganna. Við getum tekið dæmi: Hverjir kjósa í stjórn og hverjir veljast í stjórnirnar? Það eru ekki sjóðfélagarnir sem greiða beint atkvæði um það hverjir stýra lífeyrissjóðunum. Ég tel að það að vægi séreignar í lífeyrissjóðakerfinu sé alltaf að aukast sé ekki því kerfi til framdráttar. Á endanum mun molna undan því þar sem fólk mun krefjast þess að það hafi fullan ráðstöfunarrétt yfir sinni séreign. Vissulega er rétt að það eru ákveðnar kvaðir á þessari séreign og þá fær fólk skattafslátt á móti. Það eru ákveðin réttindi, ívilnun, þar og þetta er síðan notað til húsnæðiskaupa. (Forseti hringir.) Og svo er það fjármálavæðing húsnæðisins. Er ekki rétt (Forseti hringir.) að fjármálavæðingin lúti fyrst og fremst að því þegar fólk er að kaupa aðra og þriðju íbúð, (Forseti hringir.) ekki fyrstu íbúð? Fólk þarf jú alltaf að búa í íbúð. (Forseti hringir.) En þessi fjármálavæðing, það þarf að stoppa hana með lögum.