hækkun lágmarksiðgjalds til lífeyrissjóðs.
Herra forseti. Mig langaði að þakka hv. þm. Tómasi A. Tómassyni fyrir mjög mikilvægan punkt. Það er nefnilega þannig að við megum ekki bara halda það að þegar maður verður ákveðið gamall, hvort sem það er 67 eða 70, þá sértu bara einhver sem eigi að sitja úti í horni og bíða eftir því að deyja. Það var mjög góð umræða um þetta fyrir þó nokkrum árum síðan í Danmörku þar sem fjallað var t.d. um það hvað væri mikið um það að þegar fólk kæmist á þennan aldur og hætti bara einn daginn af því að það var orðið ákveðið gamalt þá tapaðist mikið af þekkingu. Þeir innleiddu kerfi þar sem þú gast farið á ellilaun einn dag í viku. Svo þú gast sagt: Nú ætla ég bara að vera fjóra daga í viku. Næst, eftir einhverja mánuði eða ár gastu sagt: Nú ætla ég bara að vera þrjá. Það er mjög mikilvægt, eins og hv. þingmaður bendir á, að við séum ekki bara að klippa á hlutina heldur skapa tækifæri fyrir þá sem eru enn í fullu fjöri og eru lyftandi á hverjum degi og koma hressir og kátir í vinnu á hverjum degi, að við séum ekki bara að segja: Heyrðu, þú færð ekki að borga neitt í lífeyrissjóð. Af hverju ekki? Ég sé ekki að það séu nein rök fyrir því að útiloka fólk bara af því að það er komið á aldur.
Ég er ekki með neina ákveðna spurningu til hv. þingmanns heldur vildi bara styðja það sem hv. þingmaður sagði og vona að hv. efnahags- og viðskiptanefnd skoði það mál þegar hún skoðar þessar breytingar.