152. löggjafarþing — 81. fundur,  30. maí 2022.

hækkun lágmarksiðgjalds til lífeyrissjóðs.

690. mál
[18:34]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Í því frumvarpi sem nú er til umræðu er verið að leggja til að þessi tilgreinda séreign verði valkvæð, að það sé hægt að velja um það hvort þessi tilgreinda upphæð, 3,5%, eða sú viðbót sem samið var um 2016, fari í tilgreinda séreign í samtryggingu. Ég gat ekki annað heyrt á hv. þingmanni en að hann teldi að ráðlegra að setja þetta í tilgreinda séreign frekar en í samtrygginguna. Ég lýsti því yfir í dag að ég ætti erfitt með að átta mig á því hvort væri vænlegra og gerði mér ekki alveg grein fyrir því hvort rétt væri að setja allt í samtryggingu frekar en að setja bara hluta í samtryggingu og síðan þessa tilgreindu séreign. En þegar maður skoðar tryggingaverndina sem slíka þá eykur það í raun og veru tryggingavernd úr 12% yfir í 15,5% að setja þetta í samtryggingu. Þannig að ég velti því fyrir mér: Eru ekki veruleg verðmæti fólgin í tryggingaverndinni sem slíkri, að hafa vernd sem miðast við 15,5% frekar en þessi 12% eins og áður var?